54. fundur Atvinnu-og ferðamálanefndar Snæfellsbæjar haldinn í Átthagastofu Snæfellsbæjar 5.október 2010 kl.17:00
Mættir:
Aðalmenn: Erla Björk Örnólfsdóttir, Björg Bára Halldórsdóttir, Þorkell Símonarson.
Varamenn: Hafþór Svansson í fjarveru Margrétar Björnsdóttur.
Fundargerð ritaði: Björg Bára Halldórsdóttir.
Dagskrá:
1. Umræður um stefnumótun fyrir SNB í markaðssetningarmálum og gerð birtingaáætlunar vegna auglýsingakaupa í nafni bæjarins.
Rætt vítt og breitt um markaðsmál. Ákveðið að nota fáa bæklinga með góða útbreiðslu. Endurskoða þarf síðan allan pakkann. Huga þarf sérstaklega að ímyndaruppbyggingu.
Vinnufundur um kynningu og markaðssetningu Vesturlands verður haldinn á vegum SSV í umsjón Átthagastofu Snæfellsbæjar í október eða nóvember. Ákveðið að hlera hvað aðrir eru að gera og athuga hvort einhverjir hafa mælt skilvirkni markaðssetningar sinnar. Þorkell, Erla Björk og Björg Bára hafa hug á að taka þátt í þeim fundi.
2. Erindi um auglýsingakaup. Fyrir fundinum liggur erindi frá Ottó Schopka hjá Útgáfufélaginu Heimi, vegna auglýsinga frá SNB í Áningu 2011. Ákveðið að kaupa ekki auglýsingu í Áningu. Vegna þessa þarf að tryggja að Lýsuhólslaug sé auglýst með öðrum sundlaugum í auglýsingu Snæfellsbæjar í ritinu; Á ferð um Ísland. Samþykkt að endurgera auglýsingu í „Vesturlandi“ riti Skessuhorns verði ákveðið að auglýsa þar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.18:50 |