Prentað mánudaginn 20. maí kl. 06:02 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarstjórn, fundur nr. 220
Dags. 21. Desember 2010

220. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn þriðjudaginn 21. desember 2010 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.

 

Mættir:

Jón Þór Lúðvíksson

Kristjana Hermannsdóttir

               Kristín Björg Árnadóttir

               Brynja Mjöll Ólafsdóttir  

Erla Björk Örnólfsdóttir

Fríða Sveinsdóttir

Pétur St. Jóhannsson

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

Lilja Ólafardóttir, bæjarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Var síðan gengið til boðaðrar dagskrár.

 

Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:

1)         Fundargerð 56. fundar atvinnumálanefndar Snæfellsbæjar, dags. 7. desember 2010, ásamt tillögu nefndarinnar varðandi tilnefningu umsjónarmanns með kynningar- og markaðsmálum.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela Átthagastofunni að tilnefna tengilið sem hafa mun umsjón með kynningar- og markaðsmálum í Snæfellsbæ.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2)         Fundargerð 32. fundar stjórnar Jaðars, dags. 7. desember 2010.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

3)         Fundargerð 61. fundar Pakkhússnefndar, dags. 10. desember 2010.

Bæjarstjórn vill koma á framfæri þakklæti til Aðalsteinu fyrir góðan hug og gjafir til Pakkhússins.  Jafnframt vill bæjarstjórn lýsa ánægju sinni með það góða starf sem farið hefur fram í Pakkhúsinu núna í jólamánuðinum.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

4)         Fundargerð 105. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 7. desember 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

5)         Fundargerð 334. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands, dags. 10. desember 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

6)         Fundargerð 115. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 11. nóvember 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

7)         Bréf frá skólanefnd, ódags., varðandi úrbætur á leikskólum, ásamt skýrslu um öryggiskönnun á leikskólum Snæfellsbæjar.

Bæjarstjórn þakkar skólanefnd fyrir ábendingarnar sem fram koma í skýrslunni.

Lagt fram til kynningar.

 

8)         Drög að samningi vegna vatnsréttinda.

Lagt fram til kynningar.  Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela Jóni Þóri, Kristjáni og Kristni að halda áfram á sömu braut ásamt lögmanni Snæfellsbæjar.

 

9)         Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2011.  Síðari umræða.

Eftirfarandi bókun kom fram frá fulltrúum J-listans

Bókun bæjarfulltrúa J listans við afgreiðslu fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar fyrir árið 2011.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 er nú til seinni umræðu og afgreiðslu í bæjarstjórn.

Ljóst er að enn eitt árið er reiknað með að bæjarsjóður verði rekin með halla. Byggt á umfjöllun um fjárhagsáætlun ársins 2011 telja Bæjarmálasamtök Snæfellsbæjar að fylsta aðhalds beri að gæta í rekstri Snæfellsbæjar til þess að fjárhagshalli ársins verð hvað minnstur. Bæjarmálasamtökin hvetja meðal annars til þess að verkefni sem tilgreind voru á framkvæmdalista fjárhagsáætlunar verði öll boðin út og leitað hagstæðra tilboða.

Í trausti þess að áfram verði unnið að hagsmunum bæjarbúa samþykkjum við þessa fjárhagsáætlun og munum hér eftir sem endranær standa vörð um grunnstoðir hvers samfélags og þau gildi sem Bæjarmálasamtök Snæfellbæjar standa fyrir sem eru fjölskyldan og félagshyggjan.

Hvetjum við alla íbúa bæjarins til að standa vörð um enn blómlegra bæjarlíf á næsta ári.

 

Eftirfarandi bókun var lögð fram frá fulltrúum D-listans

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur miðað vinnu við fjárhagsáætlun 2011 út frá þeim aðstæðum sem nú eru uppi í samfélaginu líkt og gert var við síðustu tvær fjárhagsáætlanir.

Farið er varlega í hækkanir á gjaldskrám og sumar gjaldskrár eru lítið hækkaðar um áramótin eins og t.d. leikskólagjöld, er það m.a. gert til að koma til móts við barnafólk í Snæfellsbæ sem er stór hópur íbúanna.  Útsvarsprósenta í Snæfellsbæ verður óbreytt og sama er að segja um álagningarprósentu fasteignaskatts.

 

Fulltrúar D-listans í bæjarstjórn leggja  á það áherslu að haldið verið áfram þeirri góðu þjónustu sem nú er verið að veita í sveitarfélaginu en jafnframt verður farið fram á það við forstöðumenn að stofnanir gæti ýtrasta aðhalds í rekstri og haldi sig alfarið innan þess fjárhagsramma sem þeim verður úthlutað.

 

Nýframkvæmdir verða  þó nokkrar á næsta ári en haldið verður áfram með þau verkefni sem nú eru í gangi eins og að ljúka við framkvæmdir við Dvalarheimilið Jaðar, tjaldstæðið á Hellissandi og göngustíg á milli Hellissands og Rifs.  Auk þess verður farið í ýmis viðhaldsmál eins og við Engihlíð 18 og Grunnskóla Snæfellsbæjar.  Hafnarframkvæmdir verða þó nokkrar og má þar nefna m.a. byggingu nýs viktarhúss í Rifi, breikkun þekju og nýtt ljósamasturhús við Suðurþil í Ólafsvík, endurnýjun þekju á Arnarstapa auk ýmissa annarra framkvæmda eins og vegna umhverfismála, sem mikil áhersla hefur verið lög á hingað til og verður enn.  Auk þessa verður farið í önnur smærri verkefni eins og t.d. leikskólagirðingu við leikskólann Kríuból á Hellissandi.  Þar að auki verða settir fjármunir til búnaðarkaupa í Grunnskóla Snæfellsbæjar og í leikskólum Snæfellsbæjar

 

Ljóst er að tekjur á næsta ári munu lækka og þar munar mest um framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eins er ljóst að útsvarstekjur munu lækka og mesti áhrifavaldur þar eru minni aflaheimildir á kvótaárinu 2010-2011.  En á móti kemur að það má gera ráð fyrir að fjármagnskostnaður muni lækka með minnkandi verðbólgu og skiptir það miklu fyrir Snæfellsbæ þar sem stærsti hluti lána sveitarfélagsins er í íslenskum krónum.  Auk þess lækka afborganir af langtímalánum, þar sem tekist hefur að lækka höfuðstól lána og ný lán hafa verið tekin til lengri tíma.

 

Nauðsynlegt er að árétta það að með því að varlega sé farið þegar þrengir að eins og nú, þá verður bæjarsjóður betur í stakk búinn til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða þegar betur árar. Snæfellsbær hefur á undanförnum árum staðið í miklum framkvæmdum og stendur því nokkuð vel hvað verklegar framkvæmdir varðar.  Því ætti að vera svigrúm til að halda að sér höndum í þeim efnum í einhvern tíma, þó alltaf sé af nægum verkefnum að taka.

 

Staða Snæfellsbæjar er þokkalega góð fjárhagslega þó best væri að skuldir væru mun lægri en þær eru.  Á árinu 2010 hefur tekist að lækka langtímaskuldir og eru bæjarfulltrúar D-listans afar sáttir að það skildi takast í því árferði sem nú er.  Ljóst er að rekstrarhalli verður á árinu 2011 og líta fulltrúar D-listans í bæjarstjórn á málið þannig að ef einhvern tíman er réttlætanlegt að skila rekstri bæjarsjóðs með halla þá sé það árið 2011 eins erfitt og það verður fyrir alla landsmenn.  Þó verður það þannig að ekki verða tekin lán að hærri upphæð en sem nemur afborgunum og vöxtum lána árið 2011.

 

Ljóst er að rekstur Snæfellsbæjar á árinu 2010 verður mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir og munar þar mestu að útsvarstekjur verða mun hærri en gert var ráð fyrir og sú staðreynd gefur meira svigrúm í fjárhagsáætlun 2011 eins og áður segir.

 

Mikið hefur reynt á förstöðumenn Snæfellsbæjar og starfsfólk í þessu erfiða árferði og án góðs samráðs og mikillar vinnu af þeirra hálfu þá gengi rekstur sveitarfélagsins ekki eins vel.  Fulltrúar D-listans í bæjarstjórn Snæfellsbæjar treysta á að samstarfið verði með sama hætti á næsta ári, því einungis þannig verður hægt að ná fram góðum rekstri.

 

Málefni fatlaðra verða yfirtekin af sveitarfélögum á árinu 2011 og vonast fulltrúar D-listans í bæjarstjórn að Snæfellsbær standi undir þeim væntingum.

 

Samstarf í bæjarstjórn Snæfellsbæjar er einstaklega gott og vann öll bæjarstjórn saman að gerð fjárhagsáætlunar á sérstökum vinnufundum sem haldnir voru og er full samstaða um alla liði fjárhagsáætlunar.

 

Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2011 samþykkt samhljóða.

 

10)      Minnispunktar bæjarstjóra

Bæjarstjóri kynnti stöðuna í eftirfarandi málum:

a)       Gerð var grein fyrir fundi bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar með bæjarstjórum og forsetum bæjarstjórna Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar.

b)       Bæjarstjórn óskar bæjarbúum öllum gleðilegra jóla.

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:20


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)