219. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 21. október 2010 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.
Mættir:
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Fríða Sveinsdóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Óskaði hún eftir að fá að taka inn með afbrigðum sem 9. lið bréf frá Rúnari Marvinssyni, dags. 21. október 2010. Var það samþykkt og að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Bréf frá Kristjáni Þórðarsyni, dags. 5. október 2010, ásamt svarbréfi.
Kristján óskaði eftir skriflegri samantekt vegna eftirfarandi framkvæmda. Óskaði hann eftir upplýsingum um hvað hafi verið gert, hvað sé ógert og hvað hver þessara verkefna hafi kostað bæjarsjóðs á yfirstandandi ári.
Pakkhúsið í Ólafsvík, Snæfellsbæ:
Sumarið 2010 var skipt um austurgafl Pakkhússins. Árið 2009 var keypt efni (timbur) frá Noregi fyrir bæði austurhlið og suðurgafl Pakkhússins. Efnið er geymt í geymsluhúsnæði og var tæplega helmingurinn tekinn í sumar í þessa framkvæmd á austugaflinum. Verkið var unnið í samráði við Húsafriðunarnefnd, sem veitir styrki í framkvæmdina. Þegar búið var að rífa gömlu klæðninguna af í sumar kom í ljós að hluti burðarviðs í gaflvegg var fúinn og varð því að skipta honum út fyrst. Var það gert og síðan var gaflinn klæddur af með krossvið, lektum og síðan klæddur með timbur klæðningu. Verkin lauk síðan með því að svört tjara var borin var á klæðninguna. Þörf er á því að klæða suðurhlið Pakkhússins hið fyrsta, en efnið er til í framkvæmdina.
Kostnaður við kaup á efni 2009 var eftirfarandi: 908.138 kr.
Framkvæmdakostnaður fyrir 2010 austur gafl var eftirfarandi: 2.327.166.
Styrkur frá Húsafriðunarsjóði: 1.000.000.
Tjaldsvæðið á Hellisandi, Snæfellsbæ
Við Tjaldsvæðið á Hellissandi hófust framkvæmdir árið 2010 með því að leggja skólp og vatn að svæðinu. Búið er að leggja skólp og vatn frá þjóðvegi í norðri og að aðstöðuhúsum inná svæði. Einnig var lagt skólp og vatn að fyrirhugaðri bygging Þjóðgarðsmiðstöðvar sem liggur við hlið Tjaldsvæðis. Lokið hefur verið kaupum á aðstöðuhúsi fyrir svæðið, var keyptur gámur sem er innréttaður fyrir klóssettaðstöðu. Einnig á sveitarfélagið til annan gám sem mun nýtast sem önnur aðstaða á svæðinu. Sá gámur hefur verið í lagfæringu við áhaldahús. Á tjaldsvæðinu er búið er að steypa sökkla undir þessa gáma og munu þeir fljótlega verða settir niður og tengdir. Einnig á eftir að tengja skólp, vatn, síma og rafmagn við götutengingu í Hraunás og eru þær framkvæmdir fyrirhugaðar í október 2010. Að auki er fyrirhugað að leggja rafmagnskapal inn á tjaldsvæðið haustið 2010 svo öll ummerki eftir framkvæmdir verði horfnar þegar þaðverður tekið í notkun sumarið 2011. Landslagsarkitektar hafa unnið að hönnun á svæðinu fyrir Snæfellsbæ
Framkvæmdakostnaður við Tjaldsvæði 2010 október: 10.877.825
Göngustígur milli Hellissands og Rifs:
Lokið er við hönnun á legu stígs á milli Hellissands og Rifs. Voru það arkitektar frá Landslagi sem unnu þá vinnu í samvinnu við heimamenn. Búið er að setja út fyrir stíg og semja við Stafnafell um að leggja stíginn haustið 2010. Stefnt er að því að leggja burðarlag fyrir stíg í haust og leyfa því að síga í vetur og ganga svo frá stíg 2011 með jöfnunarlagi og klæðningu.
Framkvæmdakostnaður við verkið október 2010: 275.589
Vatnsbólið í Ólafsvík, Snæfellsbæ:
Tekin var ákvörðun á vormánuðum 2010 að fara í framkvæmdir við 3 vatnsból í efstu lind vatnsbóls í Gerðubergi. Voru þessar lindir komar langt yfir á tíma og í rauninni var aðeins ein þessara linda virkjuð, en þó lak um 60% af vatni þeirrar lindar framhjá veggjum hennar. Því var tekin sú ákvörðun að fara með stórvirkar vinnuvélar á svæðið og leggja veg að lindunum, og grafa fyrir virkjunarveggjum við hverja lind. Voru þessir veggir steyptir og drenmöl ásamt fleiru komið fyrir í lindunum. Frá þessum lindum var síðan lagt í nýjum 200mm lögnum og þær sameinaðar í eina lind 400m neðar í fjallinu. Þessum framkvæmdum er nú lokið að mestu, búið er að loka gömlu lindunum í Gerðubergi sem var lokahnykkurinn á framkvæmdinni. Stefnt er á að skipta út Asbest lögn sem liggur neðar í fjallinu á árinu 2011. Eftir er að skipta út ca 1700m af gömlum lögnum sem eru komnar á tíma eða alveg að verða komnar á tíma. Þarf það að gerast á næstu árum.
Framkvæmdakostnaður við verkið október 2010: 22.679.676.
Engihlíð 18 Ólafsvík, Snæfellsbæ:
Ákveðið hefur verið að fara í framkvæmdir við klæðningu á Engihlíð 18 í Ólafsvík, sem er blokk í eigu sveitarfélagsins. Gerð var kostnaðaráætlun fyrir verkið og hafa samningar náðst við heimamenn um að vinna það, en allt efni verður keypt af Snæfellsbæ. Áætlað er að verkinu verði lokið í maí 2011
Áætlaður kostnaður við að ljúka verki 2011: 25.219.950
Kristján þakkaði fyrir umbeðnar upplýsingar.
2) Fundarboð aðalfundar Orkuveitu Staðarveitar sem haldinn verður þann 21. október n.k.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að vera fulltrúi Snæfellsbæjar á fundinum, og jafnframt að gefa honum umboð bæjarstjórnar til að samþykkja hlutafjáraukningu í Orkuveitu Staðarsveitar.
3) Bréf frá Átthagastofu Snæfellsbæjar, dags. 12. október 2010, varðandi húseignina Kirkjutún 2 í Ólafsvík.
Kristín Björg vék af fundi undir þessum lið.
Samþykkt að verða ekki við þessu erindi. Kristján sat hjá.
Kristín Björg kom nú aftur inn á fund.
4) Bréf frá Hérðasnefnd Snæfellinga, dags. 13. október 2010, varðandi aukafjárframlag vegna rekstrarvanda.
Samþykkt samhljóða að hafna erindinu. Bæjarráð telur að það verði að gera þá kröfu til Héraðsnefndar að hún verði að vera skynsöm í rekstri. Það sé greinilega fyrirsjáanlegt að það verði að draga saman seglin á árinu 2011.
5) Bréf frá Brunabót, dags. 12. október 2010, varðandi ágóðahlutagreiðslu 2010.
Lagt fram til kynningar.
6) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. október 2010, varðandi námskeið um aðgerðaráætlanir í jafnréttismálum, dags. 1. – 2. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar.
7) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélags, dags. 8. október 2010, varðandi ráðstefnu um almannavarnir í sveitarfélögum, dags. 21. október n.k.
Lagt fram til kynningar.
8) Bréf frá bæjarstjóra, dags. 19. október 2010, varðandi undirbúning fjárhagsáætlunar 2011.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra og bæjarritara að hefja undirbúning og gerð fjárhagsáætlunar ársins 2011. Bæjarráð samþykkti jafnframt að kalla forstöðumenn stofnana Snæfellsbæjar til fundar við bæjarstjórn á næsta bæjarstjórnarfundi.
9) Bréf frá Rúnari Marvinssyni, dags. 21. október 2010, varðandi lögheimilisskráningu í sumarbústað.
Bæjarráð samþykkti erindið samhljóða fyrir sína hönd.
10) Minnispunktar bæjarstjóra
a) Bæjarstjóri minnti bæjarfulltrúa á vígslu ofanflóðamannvirkja í Átthagastofu kl. 16:40 í dag.
b) Bæjarstjóri ræddi málefni Mettubúðar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:15
|