217. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 26. ágúst 2010 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.
Mættir:
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Fríða Sveinsdóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Var að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Fundargerð stjórnar Jaðars, dags. 20. júlí 2010
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2) Fundargerð 97. fundar hafnarstjórnar, dags. 7. júlí 2010
Varðandi 3. lið fundargerðarinnar, útboðið „Ólafsvík, Suðurgarður endurbygging og breikkun“, þá var afgreiðsla hafnarstjórnar samþykkt samhljóða.
Varðandi 4. lið fundargerðarinnar, gjaldskrá hafnarsjóðs, þá var afgreiðsla hafnarstjórnar samþykkt samhljóða.
Til máls tóku KH, KJ, FS, KBÁ.
3) Fundargerð 54. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 27. júlí 2010
Varðandi 1. lið fundargerðarinnar, umsókn um stærri lóð við félagsheimilið Snæfell, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 2. lið fundargerðarinnar, umsókn um verslunar- og þjónustlóð á Arnarstapa, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 3. lið fundargerðarinnar, umsókn um stækkun á núverandi lóð við Skipholt 11, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 4. lið fundargerðarinnar, nýtt deiliskipulag við Sölvaslóð 1-11, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 6. lið fundargerðarinnar, deiliskipulagsbreyting vegna Melabúðar, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 7. lið fundargerðarinnar, nýtt deiliskipulag fyrir Laugarbrekku, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 8. lið fundargerðarinnar, umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu og skyggni á núverandi hús í Vatnsholti, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 9. lið fundargerðarinnar, umsókn um leyfi fyrir klæðningu og porti við Hafnargötu 18, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 10. lið fundargerðarinnar, umsókn um leyfi fyrir breytingu á stofuglugga við Brautarholt 20, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 11. lið fundargerðarinnar, umsókn um leyfi til að setja upp gervihnattardisk við húseignina að Hellisbraut 19, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 12. lið fundargerðarinnar, umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús við Tvíodda í Staðarsveit, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Varðandi 13. lið fundargerðarinnar, umsókn um stærri byggingarleyfi fyrir sólpall, þá var afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar samþykkt samhljóða.
Til máls tóku KH, KBÁ, KJ, FS
4) Fundarboð aðalfundar SSV, dags. 10. – 11. september 2010.
Tillaga kom um Kristjönu Hermannsdóttur, Kristínu Björgu Árnadóttur, Rögnvald Ólafsson og Kristján Þórðarson sem aðalmenn. Tillaga kom um Jón Þór Lúðvíksson, Kristinn Jónasson, Fríðu Sveinsdóttur og Erlu Björgu Örnólfsdóttur sem varamenn.
Tillögurnar samþykktar samhljóða.
5) Bréf frá Ragnhildi Sigurðardóttur, dags. 10. ágúst 2010, varðandi ósk um niðurgreiðslu á leikskólaplássi.
Snæfellsbær hefur um nokkurt skeið niðurgreitt leikskólapláss fyrir börn foreldra sem eru í námi í öðrum sveitarfélögum. Sú ákvörðun var hins vegar tekin fyrr á árinu, að allar niðurgreiðslur Snæfellsbæjar vegna leikskólakostnaðar á milli lögheimilissveitarfélaga myndu niður falla þann 1. júní s.l. Bæjarráð sér sér því miður ekki fært að verða við erindinu.
6) Bréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 21. júlí 2010, varðandi umsögn Snæfellsbæjar um leyfi til handa Ólínu Gunnlaugsdóttur, til að reka veitingastað, greiðasölu og gististað í Félagsheimilinu Snæfelli á Arnarstapa.
Bæjarráð Snæfellsbæjar samþykkir erindið fyrir sitt leyti með þeim fyrirvara að fyrir liggi samþykki umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar og slökkviliðs Snæfellsbæjar.
7) Bréf frá Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, dags. 16. ágúst 2010, varðandi fjölgun hjúkrunarrýma á Jaðri.
Bæjarráð Snæfellsbæjar harmar mjög þá niðurstöðu ráðuneytisins að það eigi ekki að vera hægt að nýta þetta nýja hús til þeirra starfa sem því var ætlað. Snæfellsbær og ráðuneytið hafa þegar sett í þetta verkefni tæpan hálfan milljarð. Forsendur þess þegar farið var að stað með verkefnið voru þær að byggja hjúkrunarrými fyrir 12 einstaklinga. Út frá þeim forsendum gekk Snæfellsbær þegar tekin var sú ákvörðun að setja fjármagn í verkefnið, enda hefði verið eðlilegra ef einungis ætti að vera leyfi fyrir 10 hjúkrunarrýmum að verkið hefði verið miðað við það.
Bæjarráð Snæfellsbæjar skorar á ráðherra að endurskoða afstöðu sína með tilliti til þeirra forsenda sem farið var af stað með þegar hafist var handa við bygginguna. Einnig er rétt að það komi fram að undanfarna áratugi hefur ekki verið hægt að taka á móti öllum þeim einstaklingum sem þurft hafa á þessari þjónustu að halda og hafa þeir einstaklingar þurft að fara annað að sækja þessa þjónustu. Með þessu nýja húsnæði opnast sá möguleiki að hægt er að taka við þessum einstaklingum og veita þeim þá þjónustu sem þeir þurfa í heimabyggð.
Bæjarráð samþykkti að senda þessa bókun á heilbrigðisráðherra og afrit af því til þingmanna kjördæmisins.
8) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 13. júlí 2010, varðandi námskeið um lýðræði í sveitarfélögum, þann 6. september 2010.
Lagt fram til kynningar.
9) Minnispunktar bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi málum
a) Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið á Jaðri.
b) Framkvæmdir við vatnsból Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
c) Undirbúningur við gangstíg milli Hellissands og Rifs.
d) Ekki er búið að kalla saman alla starfshópana sem settir voru saman í sumar en það verður gert nú á næstu dögum og undirbúningur fer þá af stað.
e) Héraðsnefndarfundur verður 31. ágúst í Stykkishólmi. Allir bæjarfulltrúar eru kjörgengir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:05 |