Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 22:16 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarráð, fundur nr. 216
Dags. 21. Júlí 2010

216. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 21. júlí 2010 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.

 

         Mættir:

                   Kristjana Hermannsdóttir

                   Kristín Björg Árnadóttir

                   Fríða Sveinsdóttir

                   Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.

                  

Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.  Óskaði hann að taka fyrir bréf frá Nesver ehf inn með afbrigðum sem 15 mál, samþykkt samhljóða   Var að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.

 

Dagskrá:

1)                  Fundargerð 7. aðalfundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands, dags. 23. júní 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

2)                  Fundargerð 330. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands, dags. 28. júní 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

3)                  Fundargerð 775. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. júní 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

4)                  Bréf frá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, dags. 10. júlí 2010, varðandi styrk til byggingar.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

5)                  Bréf frá Iðnaðarráðuneytinu, dags. 14. júlí, varðandi afstöðu Snæfellsbæjar til nýtingar vatnslinda við Sleggjubeinu.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið, en vísar erindinu til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar.

 

6)                  Tölvubréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 19. júlí 2010, varðandi umsögn um leyfi til að reka veitingarstað á Hellnum (gestastofu).

Bæjarráð samþykkti erindið samhljóða fyrir sína hönd.

 

7)                  Bréf frá Icefitness ehf, dags. í júlí 2010, varðandi styrk til að halda Skólahreysti.

Bæjarráð samþykkti að veita kr. 50.000,- til verkefnisins.

 

8)                  Bréf frá Alta dags. 21. júní 2010, varðandi starfssemi Alta.

Lagt fram til kynningar.

 

9)                  Bréf frá Steiney K. Ólafsdóttur, dags. 1. júlí 2010, varðandi lausnar sem fulltrúi Snæfellsbæjar í Dreifmenntaverkefninu.

Bæjarráð þakkar Steiney fyrir hennar störf í Dreimenntaverkefninu og samþykkti jafnfram að skipa Kristínu B. Árnadóttur í hennar stað.

 

10)               Bréf frá Félagi leikskólakennara, dags. 15. júní 2010, varðandi ráðningar í stöður stjórnenda.

Lagt fram til kynningar.

 

11)               Tölvubréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 29. júní 2010, varðandi skýrslu starfshóps um endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Lagt fram til kynningar.

 

12)               Tölvubréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. júlí 2010, varðandi álagningarhlutföll sveitarfélaga vegna fasteignaskatts.

Lagt fram til kynningar.

 

13)               Tölvubréf frá Karli Björnssyni, dags. 6. júlí 2010, varðandi undirritun samkomulags um fjárhagsramma vegna flutnings á þjónustu við fatlaða.

Lagt fram til kynningar.

 

14)               Minnisblað frá bæjarstjóra, dags. 1. júlí varðandi laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra.

 

Á fundi bæjarstjórnar 15. júní var bæjarstjóra falið að setja upp laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra, þannig að aðgengilegt væri, en laun þessara aðila eru og hafa verið opinber.

 

Laun bæjarfulltrúa eru tvískipt, þ.e. annars vegar fá bæjarfulltrúar föst laun á mánuði fyrir að vera í bæjarstjórn og bæjarráði og hins vegar fá þeir laun fyrir að mæta á fundi í bæjarstjórn og bæjarráði.

 

a)       Forseti bæjarstjórnar fær  kr. 59.614 í föst laun og kr. 17.884 fyrir hvern fund.

b)       Bæjarfulltrúi fær kr. 39.742 í föst laun og kr. 11.922 fyrir hvern fund.

c)       Bæjarráðsmaður fær kr. 19.871 í föst laun og kr. 11.922 fyrir hvern fund.

d)       Formaður bæjarráðs fær kr. 29.807 í föst laun og kr. 17.884 fyrir hvern fund.

e)       Akstursstyrkur þeirra er sækja fundi er búa í dreifbýli er kr. 2.000.

 

Laun bæjarstjóra Snæfellsbæjar eru á mánuði:

a)       Bæjarstjóri fær í laun kr. 853.637.

b)       Bæjarstjóri fær fyrir að sitja fundi bæjarstjórnar og bæjarráðs kr. 87.430.

c)       Bæjarstjóri fær greidda 1.500 km vegna akstur.

d)       Bæjarstjóri leigir hús af Snæfellsbæ og borgar fyrir það kr. 17.500  í leigu.

 

15)               Bréf frá Nesver ehf., dags. 20. júlí 2010, varðandi sölu báta í eigu félagsins.

Bæjarráð samþykkti að nýta sér ekki kauprétt á viðkomandi bátum.

 

16)               Minnispunktar bæjarstjóra.

a.  Bæjarstjóri sagði frá framkvæmdum við hjúkrunarheimilið Jaðar.   Gert er ráð fyrir að byggingarframkvæmdum ljúki í lok ágúst.

Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að óska nú þegar við félags- og tryggingamálaráðherra að ganga formlega frá fjölga hjúkrunarrýmum á Jaðri úr 10 í 12 eins og rætt var um þegar ákvörðun um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var tekin, en í nýbyggingunni er  gert ráð fyrir 12 hjúkrunarrýmum.

 

b. Bæjarstjóri sagði frá framkvæmdum við Vatnsverksmiðjuna.

 

c. Bæjarstjóri sagði frá framkvæmdum við vatnsból Snæfellsbæjar í Gerðubergi sem þjónar íbúum og fyrirtækjum í Ólafsvík.

 

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:05


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)