Prentað laugardaginn 18. maí kl. 12:01 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Lista- og menningarnefnd, fundur nr. 67
Dags. 17. Maí 2010

Lista- og menningarnefnd, fundur nr. 67

Dags. 17.05.2010

 

Fundur lista- og menningarnefndar Snæfellsbæjar haldin 17. 05.2010 kl. 20 á hótel Ólafsvík.

 

1. Varðandi bréf sem bæjarstjórn vísaði til nefndarinn varðandi styrkbeiðni frá Kára Viðarsyni, v/uppsetningu á leiksýningu sem Kári verður með í sumar um ,,Bárð Snæfellsás‘‘.

Ákveðið var að veita Kára styrk að upphæð kr. 100.000-

 

2. Samþykkt að standa fyrir tónleikum með hljómsveitinni Dikta í Klifi þann 28. maí nk. Hljómsveitin er búin að staðfesta komu, þannig að farið verður í að útbúa auglýsingar sem fyrst.

 

3. Nefndin fékk það hlutverk að útnefna þrjá aðila í spurningarþáttinn Útsvar sem hefur verið undanfarna vetur á ruv. Kom upp sú hugmynd að halda undankeppni eins og gert er á sumum stöðum á landinu og verður hún útfærð betur á næsta fundi.

 

4. Leikhópurinn Lotta hafði samband og bað um styrk v/auglýsingar í bæjarblaðinu vegna fyrirhugaðar sýningar þann 11. Júní nk. Og var það samþykkt.

 

5. Rætt um leiksmiðju sem að Kári Viðars ætlar að vera með í sumar, og undirbúningur vegna hennar. Verður án efa afar skemmtilegt og spennandi.

 

6. Þórdís ræddi um kynningu sem að hún fór á í Stykkishólmi varðandi styrki úr norrænum og evrópskum menningarsjóðum sem gefur augljóslega aukna möguleika fyrir bæjarfélagið og einstaklinga, með samstarfi á milli landa í huga. Þessi kynning var ákaflega gagnleg ef fólk vill nýta sér þetta enda um töluverða háa styrki um að ræða.

 

7. Mikil ánægja var með tónleikana með Margréti Eir og voru um 200 manns sem þáðu boð lista- og menningarnefndar að koma á þessa tónleika. Menningaráð Vesturlands styrkti að hluta þessa tónleika.

 

8. Rætt um tilnefningar á Bæjarlistamanni Snæfellsbæjar, nefndinni hafa borist margar gagnlegar ábendingar og verður ákvörðun tekin á næsta fundi.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.30.

 

Mættar:

Þórdís Björgvinsdóttir

Kristín Arnfjörð Sigurðardóttir

Guðrún Fríða Pálsdóttir

Sólveig Eiríksdóttir

Elín Kristrún Halldórsdóttir


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)