Fundur nr. 51
Fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar Snæfellsbæjar.
Fundur haldinn í Átthagastofu, þann 7. apríl 2010.
Nefndarmenn mættir: Marinó Mortensen, Gunnar Ólafur Sigmarsson og Þór Magnússon.
Formaður setti fundinn kl. 12:20, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
- Auglýsingabeiðni í Íslandsbækurnar
Samþykkt að taka þátt í birtingu heilsíðu auglýsingar í bókinni “Á ferð um Ísland”. Dreifing og notkun ferðamanna á þessari bók er einstaklega góð.
- Auglýsingabeiðni í Vesturlandsblað Skessuhorns
Samþykkt að taka þátt í birtingu hálfsíðu auglýsingar.
- Tjaldstæðismál
Samþykkt að senda bréf til bæjarstjórnar þar sem nefndin hvetur bæjarstjórn til að taka lokaákvörðun í tjaldstæðismálum Snæfellsbæjar og ganga frá tjaldstæðum þannig að þau uppfylli kröfur nútíma ferðamannsins.
- Önnur mál
- Formaður upplýsti frá fundi sem hann átti með bankastjóra Landsbanka Íslands, Snæfellsbæ, varðandi málefni veitingarhússins við Gilið.
- Formaður lýsti frá samtali sem hann átti með framkvæmdarstjóra Útilegukortsins ehf. Ákveðið var að hefja samstarf við Útilegukortið ehf með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Snæfellsbæjar.
- Þann 2. mars 2007 fékk nefndin bréf frá bæjarstjórn þar sem kynnt var að verið væri að gera samræmda svæðisáætlun um förgun úrgangs fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi sameiginlega. Nefndin samþykkti að senda bréf til bæjarstjórnar og óska eftir stöðu þessa máls.
- Heimsókn
Kristín Björg Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Átthagastofu, og Margrét Björk Björnsdóttir, atvinnuráðgjafi hjá SSV, komu á fund nefndarinnar. Gestirnir kynntu hlutverk þeirra og þau verkefni sem þær væru að vinna að. Samþykkt var að auglýsa sameiginlega í bæjarblaðinu Jökli, á næstunni, um þau verkefni sem verið væri að vinna að ásamt hugmyndum sem væru uppi og möguleg atvinnutækifæri.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 14:00.
Marinó Mortensen, formaður. |