Prentað laugardaginn 18. maí kl. 09:38 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Pakkhússnefnd, fundur nr. 54
Dags. 25. Ágúst 2009
Fundur nr. 19 í Pakkhúsnefnd haldinn í Pakkhúsinu  í Ólafsvík þriðjudaginn
25. ágúst 2009 kl. 16.30 .
 
Mættar voru:
Ragnheiður Víglundsdóttir formaður
Karen Olsen ritari
Lovísa Sævarsdóttir.
Elsa Bergmundsdóttir varamaður
Fríða Sveinsdóttir safnavörður í Pakkhúsinu.
 
Dagskrá :
                  1.  Farið yfir fundargerð nr. 53 sem haldinn var þann 10. júní síðastliðinn.
2.  Hvernig hefur gengið með viðhaldsvinnu við Pakkhúsið í sumar.
3.  Hvernig hefur handverksfólki gengið með vörur og verk sín í sumar.
4. Hvernig haga skuli opnun í haust eða fyrir jólin.
5.  Önnur mál
 

1.  Á fundinum sem haldinn var 10. júní var rætt um að Steinþór Sigurðsson ( sem á sýninguna á miðhæð Pakkhússins ) hefði samþykkt breytingar þar á.  Við ákváðum að Fríða skyldi tala við hann og fá hjá honum skriflegt leyfi svo farið væri eftir öllum reglum og til að forðast eftirmála.   

2.  Búið er að mála 2 hliðar Pakkhússins. Og er það mjög gott.  Búið er að  kaupa efni til að skipta um aðrar 2 hliðar, sem nauðsynlegt er að ganga í, en þar sem ekki eru til peningar eins og er til að ljúka því þá er það mál frá í bili, þar til peningar fást í það.  

 

3.  Rosalega vel hefur gengið hjá handverksfólkinu með Pakkhúsið í sumar.  Það hefur gengið vonum framar og sjáum við að þetta fyrirkomulag sé komið til að vera áfram næstkomandi sumar. 

 

  1. Við ræddum lítillega jólaopnun.  Ætlum að koma með hugmyndir í haust og munum við vinna það í samvinnu við Fríðu Sveinsdóttur. 

 

5.  Við lýsum yfir ánægju okkar yfir að það skuli vera búið að skipta um járn á geymsluhúsnæðinu á Hellissandi. 

 

 

 Fleira ekki gjört og fundi slitið kl. 18:00

 

Ragnheiður Víglundsdóttir ( sign )

Karen Olsen ( sign ).

Elsa Bergmundsdóttir ( sign ).

Lovísa Sævarsdóttir ( sign ).

Fríða Sveinsdóttir.    ( sign ).


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)