Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 04:23 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarráð, fundur nr. 207
Dags. 30. Júní 2009

207. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn þriðjudaginn 30. júní 2009 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.

 

         Mættir:

                   Jón Þór Lúðvíksson

                   Ólafur Rögnvaldsson

                   Kristján Þórðarson

                   Kristinn Jónasson, bæjarstjóri.

                   Lilja Ólafardóttir, bæjarritari

 

Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.  Óskaði hann eftir að fá að taka inn með afbrigðum, annars vegar sem 18. lið bréf frá Póst- og fjarskiptastofnun, dags. 22. júní 2009, og hins vegar bréf frá Sjávarútvegsráðuneytinu, dags. , varðandi úthlutun byggðakvóta.  Var það samþykkt og að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.

 

Dagskrá:

1)                  Fundargerð 62. fundar lista- og menningarnefndar, dags. 10. júní 2009.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2)                  Fundargerð 94. fundar hafnarstjórnar, dags. 4. júní 2009.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

3)                  Fundargerð 18. fundar Pakkhússnefndar, dags. 10. júní 2009.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

4)                  Fundargerð 23. fundar stjórnar Jaðars, dags. 24. júní 2009.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

5)                  Fundargerð 38. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 25. júní 2009.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

6)                  Fundargerð aðalfundar Byggðasamlags um rekstur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 3. júní 2009.

Lagt fram til kynningar.

 

7)                  Fundargerð 48. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 3. júní 2009.

Lagt fram til kynningar.

 

8)                  Fundargerð 89. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 2. júní 2009.

Lagt fram til kynningar.

 

9)                  Fundargerð 101. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 20. maí 2009.

Lagt fram til kynningar.

 

10)               Bréf frá Örvari Ólafssyni, dags. 11. júní 2009, varðandi húsnæðið Líkn á Hellissandi.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn golfklúbbsins.

 

11)               Bréf frá íbúum við Selhól, dags. 16. júní 2009, varðandi leikvöll við Selhól.

Samþykkt að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2010.

 

12)               Bréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 8. júní 2009, varðandi leyfi til að reka gististað að Böðvarsholti í Snæfellsbæ.

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkir erindið fyrir sína hönd.

 

13)               Bréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 12. mars 2009, varðandi heimild til að afskrifa ógreitt útsvar skv. meðfylgjandi lista.

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkir erindið fyrir sína hönd.

 

14)               Endursendar innheimtukröfur nr. 692, 708, 709, 710, 698, 694, 696 og 695

Samþykkt að afskrifa ofangreindar kröfur.

 

15)               Fundarboð aðalfundar SSV dagana 27. og 28. ágúst 2009.

Lagt fram til kynningar.

 

16)               Bréf frá SSV, dags. 16. júní 2009, varðandi frumvarp til vegalaga.

Lagt fram til kynningar.

 

17)               Skólastefna Snæfellsbæjar – seinni umræða.

Skólastefna Snæfellsbæjar samþykkt samhljóða.

 

18)               Bréf frá Póst- og fjarskiptastofnun, dags. 22. júní 2009, varðandi ósk um lokun póstafgreiðslu á Hellissandi.

Bæjarráð Snæfellsbæjar mótmælir harðlega fyrirhugaðri lokun póstafgreiðslu á Hellissandi.  Póstafgreiðslan á Hellissandi þjónar ríflega 600 manna samfélagi ásamt stjórnsýsluskrifstofum sveitarfélagsins, Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og tugum fyrirtækja.  Það er afar brýnt að fyrirtæki, sem og einstaklingar, hafi greiðan aðgang að póstafgreiðslu í næsta nágrenni.

 

19)               Bréf frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, dags. 26. júní 2009, varðandi úthlutun byggðakvóta.

Bæjarráð Snæfellsbæjar samþykkti samhljóða að úthlutun í Snæfellsbæ fari fram eftir reglum Sjávarútvegsráðuneytisins um úthlutun byggðakvóta.  

 

20)               Minnispunktar bæjarstjóra

a)                   Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hann fór á varðandi skólamál í sveitinni.

b)                   Bæjarráð ræddi bréf sem barst frá Fjármálaeftirlitinu vegna innherja.

c)                    Bæjarstjóri gerði grein fyrir málefnum vatnsverksmiðjunnar.

d)                   Færeyingarnir koma á föstudaginn og gerði bæjarstjóri í stórum dráttum grein fyrir dagskrá helgarinnar.

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:10


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)