94. fundur hafnarstjórnarSnæfellsbæjar haldinnfimmtudaginn 04.06. 2009, kl. 20.30 á skrifstofu hafnarstjóra Norðurtanga 5, Ólafsvík.
Mættir: Anton Ragnarsson formaður,
Ragnar Konráðsson,
Arnar L. Jóhannsson,
Alexander F. Kristinsson,
Fríða Sveinsdóttir,
Björn Arnaldsson hafnarstjóri.
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
1. Bréf frá bæjarritara dags. 20.03. 2009, varðandi samþykkt bæjarstjórnar á fundargerð 93. fundar hafnarstjórnar. Lagt fram til kynningar.
2. Deiliskipulag á hafnarsvæði Rifshafnar. Hafnarstjóri kynnti óverulegar breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðisins dags. 12.01. og 24.03. 2009. Samþykkt samhljóða að gera ekki athugasemdir við breytingarnar.
3. Bréf frá Pétri S. Jóhannsyni Ólafsvík dags. 07.05. 2009, f.h. sjómanna í Ólafsvík, Rifi og Hellissandi þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 200.000. vegna hátíðahalda í Ólafsvík og Rifi á sjómannadaginn. Það er skilningur hafnarstjórnar á bréfinu að um sé að ræða ósk um styrk frá sjómannadagsráðunum í Ólafsvík og Rifi/Hellisandi. Samþykkt samhljóða að styrkja hvort sjómannadagsráð um kr. 100.000.
4. Gjaldskrá hafnarsjóðs. Hafnarstjóri kynnti gjaldskrána. Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
5. Framkvæmdir við lengingu Norðurgarðs og sandfangara í Rifshöfn. Hafnarstjóri kynnti stöðu framkvæmda, en verktakinn Nettur ehf. hefur verið úrskurðaður gjaldþrota og hætti framkvæmdum þann 07.05. 2009. Hafnarstjóri, Siglingastofnun ásamt lögmanni hafnarsjóðs vinna að lausn málsins í samstarfi við bústjóra þrotabúsins og Landsbankann.
6. Tilboð í verkið “Ólafsvíkur og Rifshöfn, þekjur við stálþil,” sem auglýst var þann 08.05. 2009, voru opnuð þann 28.05. 2009. Eftirfarandi tilboð bárust.
· Almenna umhvefisþjónustan ehf. Grundarfirði, kr. 26.836.210. 66.4%
· Stálborg ehf. Hafnarfirði, kr. 29.047.550. 71.8%
· Trémót ehf. Reykjavík, kr. 31.030.053. 76.7%
· Hannes Jónsson ehf. Reykjavík, kr. 33.704.900. 83.4%
· Afltak ehf. Mosfellsbæ, kr. 33.768.693. 83.5%
· Mikael ehf. Hornafirði, kr. 36.031.250. 89.1%
· Smiðir ehf. Reyðarfirði, kr. 43.204.784. 106.9%
· Allt viðhald ehf. Reykjavík, kr. 47.000.000. 116.3%
· Kostnaðaráætlun Siglingastofnunar Íslands, kr. 40.413.800. 100.0%
Siglingastofnun er að yfirfara og meta tilboðin. Lagt fram til kynningar.
7. Bréf frá umhverfis og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar dags. 04.06. 2009, þar sem óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar um mögulega stækkun Fiskiðjunnar Bylgju Bankastræti 1, Ólafsvík. Meðfylgjandi eru ófullgerðar hugmyndir að stækkun þ.e. að eldra hús verði stækkað um 5.0 m. til norðausturs nær Trébryggju og að byggt verði ofan á skrifstofuhluta hússins. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur hafnarstjóra og varaformanni hafnarstjórnar að vinna að málinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 21.55
Anton Ragnarsson formaður.
Ragnar Konráðsson.
Arnar L. Jóhannsson.
Friðþjófur Sævarsson.
AlexanderF. Kristinsson.
Björn Arnaldssonhafnarstjóri. |