Prentað laugardaginn 25. maí kl. 09:29 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Skólanefnd Snæfellsbæjar, fundur nr. 143
Dags. 5. Febrúar 2009

Fundargerð Skólanefndar

 

Skólanefndarfundur haldinn í Gsnb Hellissandi 5.feb 2009 kl 18.

Mætt: Örvar Marteinsson, Júníana Óttarsdóttir,Valentina Kay, Guðrún Jenný Sigurðard, Steiney Kr Ólafsdóttir,Magnús Þór Jónsson, Ingigerður Stefánsdóttir, Guðný H Jakobsdóttir, Þóra Olsen  og Elísa Helgadóttir.

 

1.     Bréf frá bæjarstjórn (fskj 223) samþykkt fundargerð.

2.     Bréf frá bæjarstjórn (fskj 224) varðandi bréf frá MMR v/úttektar á listfræðslu á Íslandi.

3.     Umræða um skólastefnu Snb og gang mála í þeirri undirbúningsvinnu. Fjarfundur áætlaður 2.mars nk.

 

Minnispunktar stjórnenda:

Valentina tónlistarskóli – tónfundir framundan 16.-19.feb

18.mars Tónvest, 2 börn frá tónlistarskólanum.

Nemandi úr tónlistarskólanum keppir í söngvakeppni Samfés 21.feb nk.

Skólastjóri sækir ársfund tónlistarskólakennara í Rvk 14.feb

 

Inga – Krílakoti: dagur leikskólans á morgun, kynning á starfinu innan skólans.

Verið  að vinna með  hjálpsemi og dyggð.  Þorrablótið er nýafstaðið.

 

Elísa Kríubóli : búið er að opna heimasíðu Kríubóls.  Á þorrablótinu var sýning á gömlum munum, harmonikkuball og fleira  og tókst þetta afbragðsvel vel.

 

Magnús þór skólastjóri grunnskólans : 3 nýir nemendur hafa bæst við grunnskólann og eru nemendur nú 265.  Skipulagsbreytingar varðandi næsta skólaár á tveimur starfsstöðvum (Hellisssandi og Ólafsvík). 

Fundur verður verður á þriðjudaginn með grunnskólum á Nesinu varðandi brautskráningar grunnskólanema.

Þann 4. júní nk. verður 10. bekkur brautskráður frá skólanum.  Námsmati mun ljúka 20. maí. 25 – 29 maí verður þemavika.

Árshátíð grunnskólans verður árlega hér eftir, 1. 2. og 20. apríl.  Tvö comeniusarverkefni eru í undirbúningi.  Fundur verður í MMR varðandi sjálfsmat skólans.

Fyrirhugað er að auglýsa eftir logo-i skólans.

Skólastjóri lýsti yfir áhyggjum varðandi pókerfíkn sem virðirst vera að hreiðra um sig innan skólans sem og í samfélaginu í heild.  Póker er alfarið bannað innan skólans. 

Skólanefnd tekur undir áhyggjur skólastjórans.

Foreldrafélag grunnskólans er komið af stað.

 

                            Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:15.


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)