Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 03:54 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Stjórn Jaðars, fundur nr. 21
Dags. 10. Febrúar 2009

21. fundur í stjórn Jaðars þriðjudaginn 10. Febrúar 2009 kl. 16:00

 

Mættir:

Sigrún Guðmundsdóttir formaður

Stefán Jóh. Sigurðsson ritari

Sigurður A. Guðmundsson

Inga Kristinsdóttir forstöðumaður.

 

Byggingarframkvæmdir:

Sunnudaginn 8 febrúar s.l. voru boðnar út framkvæmdir við nýbyggingu hjúkrunarheimilis við Jaðar. Um er að ræða 1105 fm. hjúkrunarheimili á tveimur hæðum. Á neðri hæð eru 5 einstaklingsrými  ætluð heilabiluðum en á efri hæð eru 7 almenn hjúkrunarrými.

Tilboð verða opnuð 24. Febrúar og verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. Júlí 2010.

Vettvangsskoðun verður haldin 12. Febrúar kl. 13:00 til 14:00 að viðstöddum  fulltrúa verkkaupa.

 

Forstöðumaður ræddi um starfsmannamál og mun auglýsa eftir starfsmanni í 65 % starf.

 

Miðvikudaginn 4. Febrúar s.l. færði Elisabet Jóna Ingólfsdóttir Dvalarheimilinu Jaðri gjöf að upphæð ein  miljón króna. Gjöfin er ætluð til kaupa á búnaði fyrir heimilið. Forstöðumaður þakkaði fyrir þessa höfðinglegu gjöf. 

 

Stjórn Jaðars færir Elisabetu Jónu kærar þakkir fyrir gjöfina.

 

Stofnaður hefur verið Styrktar- og gjafasjóður Jaðars í Sparisjóði Ólafsvíkur, bók 1143-15-550496

 

Fleira ekki gjört, fundi slitið kl. 17:00

 

Sigrún Guðmundsdóttir

Sigurður A. Guðmundsson

Inga Kristinsdóttir

Stefán Jóh. Sigurðsson


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)