Fundur nr. 50
Fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar Snæfellsbæjar
Fundur haldinn í húsakynnum Sparisjóðs Ólafsvíkur þann 9. desember 2008
Nefndarmenn mættir: Marinó Mortensen, Laufey Helga Árnadóttir og Elías Róbertsson.
Formaður setti fundinn kl. 20:30, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
- mál
Formaður kynnti bréf frá bæjarráði Snæfellsbæjar varðandi hvalaskoðun frá Ólafsvík.
- mál
Formaður kynnti bréf frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar varðandi hvalaskoðun frá Ólafsvík.
- mál
Lagt til kynningar tölvupóstur varðandi Íslandshandbókina.
- Mál
Tölvupóstur frá Ottó Schopka varðandi styrk og auglýsingu í ferðabókinni „Á ferð um Ísland“. Samþykkt að styrkja þessa útgáfu með auglýsingu.
- mál
Önnur mál
a) Óformlegt erindi barst nefndinni um að það vantaði póstkassa á Rifi. Formanni var falið að tala við stöðvarstjóra Íslandspósts í Ólafsvík.
b) Formaður kynnti tölur um atvinnuleysi í Snæfellsbæ, Grundarfirði og Stykkishólmi. Athygli vakti hversu hátt hlutfall atvinnuleysis var frá maí – september 2008 í Snæfellsbæ. Nefndarmenn telja ástæðuna vera skerðingu á þorskkvóta.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:05.
Laufey Helga Árnadóttir, ritari |