204. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar haldinn fimmtudaginn 23. október árið 2008 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00.
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Ólafur Rögnvaldsson
Steiney Kr. Ólafsdóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Var óskað eftir því að fá að taka inn tvö erindi með afbrigðum, annað frá Ungmennafélaginu Víkingi varðandi aðstöðu í íþróttahúsinu og hins vegar frá Sýslumanni Snæfellinga varðandi sameiginlega almanavarnarnefnd á Snæfellsnesi. Var það samþykkt og að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Bréf frá UMF Reyni, dags. 17. október 2008, varðandi niðurfellingu á leigu í Röst.
Erindið samþykkt samhljóða.
2) Bréf frá Héraðsráði Snæfellinga, dags. 15. október 2008, varðandi tillögur um breytingar á rekstrarþáttum Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla.
Samþykkt að fresta erindinu og vísa því til frekari umræðu í bæjarstjórn.
3) Bréf frá Héraðsráði Snæfellinga, dags. 15. október 2008, varðandi aukaframlag vegna rekstrarvanda Héraðsnefndar Snæfellinga.
Samþykkt að fresta erindinu og vísa því til frekari umræðu í bæjarstjórn.
4) Bréf frá bæjarstjóra, dags. 21. október 2008, varðandi aukið hlutafé til Orkuveitu Staðarsveitar.
Samþykkt samhljóða að auka hlutabréf Snæfellsbæjar í Orkuveitu Staðarsveitar um 5 milljónir króna.
5) Bréf frá bæjarstjóra, dags. 21. október 2008, varðandi undirbúning fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra og bæjarritara að hefja vinnu við gerð fjárhags-áætlunar 2009.
6) Bréf frá Menntamálaráðuneytinu, dags. 3. október 2008, varðandi tilnefningu í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Samþykkt að fresta erindinu og fela bæjarstjóra að ræða við hin sveitarfélögin um tilnefningu.
7) Bréf frá Grundarfjarðarbæ, dags. 1. október 2008, varðandi sameiginlega almannavarnanefnd á Snæfellsnesi.
Bæjarráð Snæfellsbæjar telur óþarft að breyta núverandi fyrirkomulagi um almannavarnir og telur best að núverandi samstarf haldi áfram óbreytt.
8) Bréf frá Brunabót, dags. 6. október 2008, varðandi úthlutun úr Styrktarsjóði EBÍ 2008.
Lagt fram til kynningar.
9) Bréf frá Stofnun Árna Magnússonar, dags. 8. október 2008, varðandi Dag íslenskrar tungu þann 16. nóvember n.k.
Samþykkt að senda erindið til leik- og grunnskólastjóra, ásamt forstöðumanni bókasafns,
10) Bréf frá Íbúðalánasjóði, dags. 15. október 2008, varðandi leiguíbúðafélög sem fengið hafa lán eða lánsvilyrði frá Íbúðalánasjóði.
Lagt fram til kynningar.
11) Tölvubréf frá SÍS, ódags., varðandi ungmennaráð.
Samþykkt að fela bæjarstjóra og bæjarritara að vinna þetta mál og kynna það á næsta fundi bæjarstjórnar
12) Bréf frá Ólafi Jakobssyni, dags. 13. október 2008, varðandi áreiðanlegt netsamband.
Lagt fram til kynningar.
13) Bréf frá Breiðafjarðarnefnd, dags. 22. september 2008, varðandi verndaráætlun Breiðafjarðar 2008-2018.
Lagt fram til kynningar.
14) Bréf frá Breiðafjarðarnefnd, dags. 22. september 2008, varðandi styrkingu á vernd Breiðafjarðar.
Bæjarráð Snæfellsbæjar vill vekja athygli á því að hugsanlegur starfsmaður Breiðafjarðarnefndar gæti átt mikla samleið með starfsfólki Rannsóknarsetursins Varar í Snæfellsbæ, en hjá Vör er þegar verið að vinna mikið og gott starf í rannsóknum á lífríki Breiðafjarðar. Starfsmaður Breiðafjarðarnefndar gæti því hugsanlega fengið aðstöðu hjá Vör og þar með unnið náið með starfsmönnum rannsóknarsetursins.
15) Íþrótta- og æskulýðsstefna Snæfellsbæjar.
Samþykkt að vísa íþrótta- og æskulýðsstefnunni til nánari umræðu í bæjarstjórn.
16) Tilnefning tveggja aðila í Íþrótta- og æskulýðsnefnd Snæfellsbæjar
Tillaga kom um Elvu Ösp Magnúsdóttur og Erlu Kristínu Sigurðardóttur sem aðalmenn í íþrótta- og æskulýðsnefnd. Jafnframt kom tillaga um Gísla Marteinsson sem varamann í nefndina í stað Elvu.
Tillögurnar samþykktar samhljóða.
17) Bréf frá Knattspyrnudeild Víkings, ódags., varðandi ósk um aðstöðu fyrir Víking í íþróttahúsi Snæfellsbæjar.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að skoða þetta mál nánar.
18) Bréf frá Sýslumanni Snæfellinga, dags. 20. október 2008, varðandi sameiginlega almannavarnar- nefnd á Snæfellsnesi.
Lagt fram til kynningar.
19) Minnispunktar bæjarstjóra
a) Bæjarstjóri gerði grein fyrir mögulegu húsnæði fyrir fyrirhugaða átthagastofu. Bæjarráð samþykkti samhljóða að setja húsnæðið að Kirkjutúni 2 undir þessa starfsemi og samþykkti jafnframt fjárframlag til að standsetja húsnæðið fyrir átthagastofuna.
b) Bæjarstjóri kynnti málefni Rannsóknasetursins Varar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:55 |