Skólanefndarfundur haldinn í Gsnb Hellissandi 9.apríl 2008 kl 20.
Mætt: Örvar Marteinsson, Þóra Olsen, Júníana B. Óttarsdóttir, Guðrún Jenný Sigurðardóttir, Steiney K Ólafsdóttir, Steinunn Ingibjörnsdóttir, Valentina Kay og Magnús Þ. Jónsson.
1. fskj. 206 fundargerðir samþykktar.
- Minnispunktar Steinunnar leikskólastjóra Kríubóls:
Steinunn er á leið í fæðingarorlof, jafnframt því að hætta störfum frá og með sumarfríi.
Foreldraviðtöl standa yfir.
Leikskólinn Kríuból var að fá hljómborð að gjöf frá Kvenfélagi Hellissands. Einnig gaf Kvenfélag Ólafsvíkur Krílakoti hljómborð.
Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir gaf Númaspil að gjöf og þeim færðar þakkir fyrir.
Leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri Kríuból fóru til Birmingham á námsgagnasýningu.
- Minnispunktar Valentinu Kay tónlistarskólastjóra:
Nemendur tóku grunnstig og gekk það vel.
Einn kennari hætti við að taka miðstig
Evgeny kennari á leið til Reykjavíkur á námskeið sem verður í maí.
Hinir síungu ætla að syngja með nemendum úr skólanum.
Vorprófunum er lokið.
Tæplega 50 manns eru á leið á tónleika hjá Sinfoníuhljómsveit Íslands
þann 19. apríl n.k.
- Minnispunktar skólastjóra Gsnb Magnús Þór Jónsson
Lagt fram skóladagatal fyrir 2008-2009, samþykkt einróma. (fskj. 208)
Kennarastöður voru auglýstar um 6. apríl s.l.
Gunnar Örn Gunnarsson fer í launalaust leyfi í eitt ár.
Komar eru 3 umsóknir, þar af ein með kennararéttindi.
Kennslumagn minnkar um ca. eina kennslustöðu.
Magnús fór á fund ásamt kollegum sínum á Snæfellsnesi, Vesturbyggð og
Tálknafirði til að ræða þá hugmynd menntmálaráðuneytisins að samnýta/fullnýta kennslu með fjarfundarbúnaði. Samþykkt af öllum skólastjórum með fyrirvara um komu mmr að búnaði.
2 bréf til bæjarráðs vegna annars vegar flutnings allar smíðakennslu úr Ólafsvík vegna ófullnægjandi húsnæðis og hins vegar bréf með ósk um meira fjármagn innan sveitar mtt frábærlega vel heppnaðar samvinnu milli starfsstöðvanna í tengslum við söngleikinn nú í mars. Skólanefndin óskar aðstandendum til hamingju með vel heppnaða sýningu.
Árshátíð 8.10.bekkjar verður á Lýsuhóli 17.apríl, börnin af Lýsuhóli taka einnig þátt í árshátið yngri barna 23.apríl n.k í Ólafsvík.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl 21:35 |