Skólanefndarfundur haldinn í Gsnb Hellissandi 4.mars 2008 kl 20.
Mætt: Örvar Marteinsson, Þóra Olsen, Júníana B. Óttarsdóttir, Guðrún Jenný Sigurðardóttir,,Alexander Kristinsson, Valentina Kay og Magnús Þ. Jónsson.
1. Bréf frá bæjarstjórn um að Snb komi til móts við æskulýðsfélaga kirkjunnar v/landsmóts sem á að halda í Ólafsvík 17.-19.okt nk. (fskj 203)
- Bréf frá bæjarstjórn Snb (fskj 204) vegna umsagnar skólanefndar um frumvarp til laga um leik- og grunnskóla, ánægja með þá vinnu sem lögð var í skýrslurnar.
- Minnispunktar tónlistarskólastjóra .
a. Óánægja með fámenna mætingu á Tónvest á Klifi s.l sunnudag (fskj 205 dagskrá Tónvest). Sömu tónleikar fyrirhugaðir 9. og 10.mars í Búðardal, Stykkishólmi, Borgarnesi og Akranesi.
b. Vorpróf á næstunni 11.13.mars
c. Tónleikar hjá Sinfoníuhljómsveitinni 19.apríl, góð þátttaka og rútuferð til og frá Reykjavík
d. Fiðlunemendur fara með Valentinu nú í mars á Akranes í tónlistarskólann þar í masterclass.
- Skólastjóri Gsnb.
a. Búið að sækja um grænfána fyrir Gsnb bæði á Hellissandi og í Ólafsvík, stefnt að þessu i vor.
b. Leikritið frumsýnt á fimmtudaginn og jafnvel fleiri sýningar fyrirhugaðar ef það verður eftirspurn.
c. Skíðaferð hjá unglingadeildinni til Dalvíkur í næstu viku.
d. Fyrirhugað að setja tónfræði inn í stundaskrá nk haust fyrir þá nemendur sem stunda tónlistarnám.
e. Undirbúningur í gangi vegna aukinna valgreina í nýrri aðalnámsskrá grunnskólanna.
f. Verið að skoða flutning á smíðakennslu úr smíðastofunni í Ólafsvík.
g. Gsnb fékk ófullnægjandi stimpil varðandi sjálfsmat. Úttektaraðilar lýstu ánægju sinni með þá vinnu sem er í gangi.
h. Umræða um brottvikningu nemanda v/ítrekaðs agabrots og hefur verið sent til barnaverndarnefnd til meðferðar.
i. Starfsmannaviðtöl að hefjast þar sem kemur fram kennaraþörf næsta skólaárs.
Fundur í hérðasnefnd Snæfellinga á Klifi á morgun kl 17. Fyrirlestur um frumvarp til nýrra leik- og grunnskólalaga.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl 21:20 |