Fundur nr. 48
Fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar Snæfellsbæjar
Fundur haldinn í Sparisjóði Ólafsvíkur þann 9. október 2007
Nefndarmenn mættir: Marinó Mortensen, Laufey Helga Árnadóttir, Gunnar Ólafur Sigmarsson, Elías Róbertsson og Þór Magnússon.
Formaður setti fundinn kl. 20:30, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
- mál
Tölvupóstur frá Ferðamálasamtökum Íslands og Athygli ehf. dags. 8. ágúst 2007.
Lagt til að auglýsa heilsíðu í þessum bækling. Samþykkt samhljóða.
- mál
Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dags. 6. júní 2007.
Formaður kynnti þennan sjóð.
- mál
Bréf frá Ferðamálasamtökum Snæfellsness, dags. 11. júní 2007.
Samþykkt samhljóða að taka þátt í endurprentun á bæklingi.
- mál
Vor undir Jökli, framhald?
Rætt var um síðastliðna hátíð Vor undir Jökli, hvernig þetta heppnaðist og fleira. Rætt var um hvort þetta væri heppilegasta markaðsherferðin fyrir komandi ferðasumar. Komið var með tillögu um að senda bréf til bæjarstjórnar þar sem lagt er til að ráða markasfulltrúa í fullt starf fyrir Snæfellsbæ.
- mál
Önnur mál.
Rætt var um tjaldstæðin í Snæfellsbæ og hvernig aðstaðan er á þeim. Lagt var til að senda bréf til bæjarstjórnar þar sem beðið er um fund til að fá að vita stöðuna.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:30.
Laufey Helga Árnadóttir, ritari |