Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 09:24 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarráð, fundur nr. 192
Dags. 19. September 2007

192. fundur í bæjarráði Snæfellsbæjar, haldinn miðvikudaginn 19. september árið 2007 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 17:00.

 

            Mættir:

                        Jón Þór Lúðvíksson

Ólafur Rögnvaldsson

                        Gunnar Örn Gunnarsson

                        Björn Arnaldsson (undir lið 12)

                        Smári Björnsson (undir lið 1, 2 og 12)

                        Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

                        Eyþór Björnsson, bæjarritari

 

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og gekk síðan til dagskrár. Formaður bar upp tillögu um að setja inn á dagskrá tillögur að bréfi um mótvægisaðgerðir undir lið 11.

 

Dagskrá:

1)                 Samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Snæfellsbæjar.

Bæjarritari kynnti drög að nýrri samþykkt um gatnagerðargjöld. Bæjarstjóra, bæjaritara og byggingafulltrúa falið að gera tillögu að samþykkt fyrir næsta fund bæjarráðs. Samþykkt samhljóða.

 

2)                 Bréf frá Framfarafélagi Snæfellsbæjar, Ólafsvíkurdeild, ódags., með tillögu að vinnu við að gera Ennis-Bekkinn að skemmtilegu útivistasvæði.

Bæjarráð þakkar framfarafélaginu fyrir þeirra tillögur.  Bæjarstjóra og tæknifræðingi falið að framkvæma tillögurnar í samráði við framfarafélagið.

 

3)                 Bréf frá Björgvini Þorsteinssyni hrl, f.h. Gatkletts ehf., dags. 12. september 2007, varðandi lóð á Arnarstapa og styrk til að koma upp salernisaðstöðu fyrir ferðamenn.

Bæjarstjóra falið að skoða málið. Afgreiðslu frestað. Varðandi lóðarumsókn er félaginu bent á að senda formlegt erindi til umhverfis- og skipulagsnefndar.

 

4)                 Bréf frá Guðmundi Alfreðssyni, dags. 3. september 2007, varðandi fjallskilaskrá.

Erindinu vísað til landbúnaðarnefndar til umfjöllunar.

 

5)                 Bréf frá Guðna Á Haraldssyni hrl, dags. 10. september 2007, varðandi mál Sveins Þórs Elínbergssonar.

Bréfið lagt fram á fundinum. Bæjarstjóra falið að láta skoða þetta mál.

 

6)                 Frá samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi; dagskrá aðalfundar 20. september 2007, ásamt tillögum að lagabreytingum.

Lagt fram til kynningar.

 

7)                 Bréf Sorpurðun Vesturlands, dags. 11. september 2007, varðandi verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum, ásamt fundargerð stjórnarfundar 20. ágúst 2007.

Dagskrárliður sameinaður lið 8.

 

8)                 Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 5. september 2007, varðandi verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum, ásamt fundargerð fundar um hagsmunagæslu sveitarfélaga í úrgangsmálum, verkefnislýsing og áherslur Sambands íslenskra sveitarfélaga í úrgangsmálum.

Lagt fram til kynningar.

 

 

9)                 Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. september 2007, varðandi viðmiðunarreglur um kirkjugarðastæði o.fl.

Lagt fram til kynningar.

 

10)             Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 17. september 2007, varðandi breytingu sjóðsins í opinberthlutafélag.

Lagt fram til kynningar.

 

11)             Tillaga að bréfi til ríkisstjórnar um tillögur að mótvægisaðgerðum vegna skerðingar á þorskveiðikvóta.

Samþykkt að bæta við í bréfið að heilsugæsla í Snæfellsbæ yrði efld.

 

12)             Minnispunktar bæjarstjóra

a)      Umræður um málefni vatnsverksmiðju. Smári og Björn sátu fundinn undir þessum lið.

b)      Bæjarstjóri fór yfir sameiginlegt bréf sveitarfélaganna á norðanverðu Snæfellsnesi. Þar sem óskað er eftir upptöku á samningi um rekstur húsnæðis Fjölbrautarskóla Snæfellinga, kostnað við skólaakstur fjölbrautarskólans, styrkja tekjugrunn sveitarfélaganna, um styrk til vinnu við umhverfisvottun svæðisins og varðandi vanda við hreinsun á fráveituvatni svo sem lög bjóða.

c)      Bæjarstjóri óskaði eftir heimild bæjarráðs til að auka hlutafé Orkuveitu Staðarsveitar um 2,5 millj. kr. Samþykkt samhljóða.

 

 

Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 18:40


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)