Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 21:52 af www.snb.is
26. júní 2012 08:26

Víkingur í þriðja sæti eftir tap gegn Leikni

Víkingur Ólafsvík tók á móti Leikni á Ólafsvíkurvelli í 1. deild karla í knattspyrnu síðastliðið föstudagskvöld, en fyrir leikinn höfðu Leiknismenn ekki unnið leik á mótinu. Víkingar voru betri framan af og áttu nokkur góð skot á markið. Hættulegasta færið kom á 37. mínútu þegar Edin Beslija skaut boltanum í stöng. Það var því gegn gangi leiksins þegar Leiknismenn skoruðu mark á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og sótt hart að markinu. Gestirnir færðu sig hins vegar aftar á völlinn og vörðust vel það sem eftir lifði leiks. Markmaður Leiknis átti stórleik og kom oft í veg fyrir að Víkingar næðu að jafna en niðurstaðan var 0-1 Leikni í vil.

Víkingur Ólafsvík situr eftir leikinn í þriðja sæti með 13 stig, jafn mörg og Þór sem er í öðru sæti. Næsti leikur Víkinga verður á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 30. júní gegn BÍ/Bolungarvík.

 

 

Frétt fengin af vefsíðu Skessuhorns.


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit