![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
26. apríl 2012 10:37 |
Aflafréttir |
Það er ansi rólegt núna. Allir dragnótabátarnir við Snæfellsnesið eru stopp sem og línu- og netbátarnir. Fyrir stoppið kom Tjaldur SH með 80 tonn og Örvar SH með 55 tonn eftir einn róður hvor bátur og Rifsnes SH 60 tonn eftir tvær landanir. Hamar SH er kominn með 52 tonn í 6 róðrum og er fimm af þeim löndunum landað í Grindavík og einni á Rifi. Kristinn SH hefur heldur betur fiskað vel af steinbít því báturinn hefur tvisvar komist yfir 17 tonn í einum róðri og er kominn með 88 tonn í 7 róðrum.
|
Tryggvi Eðvarðs SH og Særif SH sem voru búnir að vera í Grindavík og Sandgerði í um mánuð eru komnir í heimahafnir sínar og fóru beint á steinbítinn og hafa heldur betur mokveitt. Særif SH komst í 16,2 tonn í einum róðri og var með 36 tonn í 3 róðrum. Tryggvi Eðvarðs SH var með 30,5 tonn í 3 róðrum og komst í tæp 13 tonn í einum róðri. Algert hrun var á línuveiðum smábátanna sem réru frá Snæfellsnesi eins og hefur komið fram og því var það kærkomið fyrir áhafnir á Guðbjarti SH og Brynju SH að fá að komast í steinbítinn. Brynja SH var með 19 tonn í einungis 2 róðrum og Guðbjartur SH kom með 9,6 tonn í einum róðri. Trollbáturinn Farsæll SH er búinn að landa 87 tonnum í tveim róðrum. Sóley SH kom með 56 tonn í einni löndun sem er fullfermi hjá bátnum. Sigurborg SH landar nú ekki mikið í heimahöfn sinni sem er Grundarfjörður, því báturinn er gerður út á rækju og hefur verið eini báturinn sem hefur verið gerður út á rækju allt árið. Báturinn er núna hæstur ísrækjubátanna og var búinn að landa 235 tonnum af rækju og 53 tonnum af fiski, það miðast við 3. apríl. Siguborg SH er enn sem komið er eini SH báturin sem er á rækju en miðað við árið í fyrra þá má búast við að Hamar SH og Farsæll SH fari báðir á rækju og jafnvel Esjar SH og Matthías SH en allir þessir 4 bátar voru á rækju í fyrra. Sigurborg SH landaði þá í heimahöfn sinni rækju sem var veidd í jökuldýpinu. Gísli Reynisson www.aflafrettir.com |
Frétt úr Jökli 18.4.2012 |