Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 13:51 af www.snb.is
30. ágúst 2012 10:28

Nýtt fjarnám í boði hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands

Símenntunarmiðstöð Vesturlands býður  upp á fjarnám í Menntastoðum á haustönn 2012.


Menntastoðir er grunnnám á framhaldsskólastigi. Kennd eru eftirtalin fög; stærðfræði, íslenska, enska,danska, námstækni, bókfærsla og tölvu- og upplýsingatækni. Kennsluhættir Menntastoða miðast við þarfir fullorðinna nemenda og leitast er við að veita nemendum góða þjónustu.

 

Nánari upplýsingar má nálgast inni á www.simenntun.is eða hafa samband við Helgu Lind Hjartardóttur verkefnisstjóra Menntastoða hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands í síma 895 1662 eða netfangið helgalind@simenntun.is

 

 

Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga. Námið er metið sem fullnægjandi undirbúningur undir frumgreindadeildir Keilis, Bifrastar og Háskólans í Reykjavík.

 

Námið er 2 annir og hefst með staðlotu föstudaginn 21.september

 

Umsóknarfrestur er til 17. september og námið kostar 116.000 kr.

 

Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum. Einnig  geta atvinnuleitendur sótt um námsstyrk hjá Vinnumálastofnun vegna Menntastoða.

 

 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit