Prentað föstudaginn 24. maí kl. 10:41 af www.snb.is
9. ágúst 2012 14:16

Rannsóknarskúta til sýnis á morgun föstudag

Á morgun föstudag 10. ágúst milli klukkan 11:00 og 12:00 og milli 14:00 og 16:00 er rannsóknarskúta IFAW samtakanna opin almenningi þar sem hún er stödd í Grundarfirði. Skútan er hér við land i sex vikur til að stunda rannsóknir á hvölum í samstarfi við Háskóla Íslands.


 

Rannsóknarskútan er 22 metra löng og sérstaklega smíðuð til rannsókna á sjávarspendýrum. Gestum verða kynntar rannsóknirnar og gefinn kostur að heyra hin margvíslegu hljóð hvalanna sem tekin hafa verið upp af áhöfn skútunnar undanfarin ár m.a. við Ísland. KLukkan 14:00 verður hálftíma fyrirlestur á vegum Varar í Ólafsvík um fæðuástand fiska og spendýra í Breiðafirði og sömuleiðis verður rannsóknarsamstarf IFAW og HÍ kynnt  þeim sem hafa áhuga á.

 

Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma í Grundarfjarðarhöfn 10.
ágúst og skoða þessa einstöku seglskútu.

 

KBÁ


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit