Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 58,5 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samanborið við 46,6 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11,9 milljarða eða 25,5% á milli ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks á tímabilinu var 36,6 milljarðar króna og jókst um 19,3% milli ára. Verðmæti uppsjávarafla var um 16,2 milljarðar á tímabilinu sem samsvarar aukningu um 48,2%. Verðmæti afla sem er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 32,3 milljörðum króna og er það aukning um 29,1% miðað við sömu mánuði í fyrra.
|