Prentað mánudaginn 20. maí kl. 14:46 af www.snb.is
18. júlí 2012 11:02

2-1 tap gegn nöfnum okkar í Fossvoginum

Víkingar fóru í heimsókn í Víkina og mættum þar nöfnum sínum úr Víking Reykjavík. Það var ljóst fyrir leikinn að þeir myndu mæta með þunnskipaðann hóp þar sem nokkrir leikmenn okkar eru að glíma við meiðsli. Það má segja að þessi leikur hafi verið tvískiptur frá okkar hálfu. Við áttum frekar dapran fyrri hálfleik þar sem við lentum tvö núll undir fljótlega í leiknum. En allt annað var að sjá til okkar í seinni hálfleik þar sem skipulag og barátta var til fyrirmyndar. En 2-1, tap varð niðurstaðan eftir þessa viðureign. Mark okkar gerði Torfi Karl Ólafsson.

Það var til fyrirmyndar að sjá hvað margir komu í Víkina til að styðja okkur og erum við þakklátir fyrir þennan stuðning. Núna er mótið hálfnað og allur seinni hlutinn eftir og það er nóg eftir af þessu móti. Næsti leikur er á móti Fjölni í Grafarvogi næst komandi laugardag kl 14:00.


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit