Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 00:24 af www.snb.is
2. júlí 2012 08:18

Konur hlupu í Kvennahlaupi

Kvennahlaupið fór fram í blíðskaparveðri laugardaginn 16. júní, 46 kátar og
hressar konur hlupu sem er óvenjufátt miðað við í fyrra, þá tóku 97 konur
þátt, en allt á þetta sýnar eðlilegar skýringar í svona litlu samfélagi  að sögn
Sigríðar Þórarinsdóttur sem að hefur veg og vanda af hlaupinu, það var t.d.
pæjumót í eyjum, brúðkaup, útskrift og fótboltamót á Akranesi.
Boðið var uppá 3 vegalengdir að þessu sinni, vistmönnum á Jaðri var boðið og þáðu 4 konur það og var sett upp styttri vegalengd, það sem skiptir höfuðmáli er að hvetja fólk til hreyfingar og taka þátt.

Flestar konurnar fóru 2.5 km., og svo voru nokkrar sem að fóru 5 km. Í lokin fengu allir Kristal að drekka og verðlaunapening. Magdalena Kristjánsdóttir var heiðruð því að hún var elsta konan í hlaupinu 84 ára. Þar að auki voru fjórir happadrættisvinningar dregnir út. Sigríður Þórarinsdóttir sá um að konur hituðu vel upp fyrir hlaupið.
sig

 

Fréttin fengin úr bæjarblaðinu Jökli. 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit