Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 02:55 af www.snb.is
29. júní 2012 08:00

Gjafir til lífsbjargar

Lionsklúbbur Ólafsvíkur færði björgunarsveitinni Lífsbjörgu gjafir í síðustu viku, þær samanstóðu af þremur 27 tommu tölvuskjám, þráðlausum lyklaborðum og uppfærslum á tölvubúnaði. Í samtali við Davíð Óla Axelsson formann Lífsbjargar kom fram að þessi búnaður nýtist sveitinni í stjórnstöðinni við að stjórna og setja upp leitir bæði á sjó og landi, að auki þá eru skjáirnir staðsettir þannig að allir stjórnendur leitaraðgerða geta alltaf fylgst með hvernig aðgerðum framvindur.

Lionsklúbbur Ólafsvíkur hefur eins og önnur félög, fyrirtæki, klúbbar og einstaklingar í Snæfellsbæ verið dugleg að styrkja björgunarsveitina fjárhagslega og með tækjakaupum. Það að samfélagið stendur svo þétt að baki Lífsbjörgu er ein helsta ástæðan fyrir því hve vel hefur gengið að byggja nýtt húsnæði yfir sveitina.
jo 

 

Fréttin var fengin úr bæjarblaðinu Jökli. 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit