Prentað mánudaginn 20. maí kl. 22:00 af www.snb.is
28. júní 2012 13:31

Sigur og tap

Eftir mjög góðan sigur á Haukum í Hafnarfirði 15. júní s.l. 0-2, lágu Víkingar heima gegn neðsta liði deildarinnar, Leikni. Þeir sem sáu leikinn í Hafnarfirði voru sammála um að það væri besti leikur Víkings í sumar, sem léku eins og sá sem valdið hefur og sáu Haukarnir aldrei til sólar eins og
einn orðaði það. Björn Pálsson miðjumaðurinn sterki skoraði bæði mörk Víkings í leiknum, bæði af dýrari gerðinni. Liðið lék sem heild mjög vel og samhugur í drengjunum og þá þarf ekki að spyrja að leikslokum því liðið er fyrnasterkt þegar það leikur eins og í firðinum.

 En það er erfitt að vera á
toppnum og það fengu Víkingar að reyna á föstudaginn þegar Leiknir kom í heimsókn. Víkingarnir byrjuðu mjög vel og sóttu stíft fyrstu 20 mín. án þess að skapa sér opin færi. Leiknismenn náðu að vinna sig aðeins inn í leikinn. Á 37 mín átti Edin skot í innanverða stöng en nær komust Víkingar ekki í markaskorun. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins að Leiknismenn náðu að skora á lokamínútu fyrri hálfleiks. Viðstaddir reiknuðu með að Víkingarnir kæmu grimmir inn í seinni hálfleikinn, sem og þeir gerðu án þess að ógna Leiknismarkinu verulega. Víkingar voru miklu meira með boltann, en það telur ekkert í úrslitunum. Eyjólfur markmaður Leiknis átti mjög góðan leik og bjargaði nokkrum sinni á stórgóðan hátt. Leiknismenn léku sterkan varnarleik og fóru eins langt í því eins og dómarinn leyfði, sem er mjög skynsamlegt þegar verið er að verja fyrsta sigur sumarsins, sem þeim tókst. Leikurinn endaði því með 0-1 sigri Leiknis. Næst leikur er hér heima við Bí/Bolungarvík, sem er í næst neðsta sæti deildarinnar á laugardaginn kl. 14 og má reikna með hörkuleik, enda verða Víkingar að vinna ef þeir ætla sér að vera áfram í toppbaráttunni. Skorum á íbúa að kjósa snemma og fjölmenna síðan á völlinn og styðja við bakið á strákunum.
óhs

 

Frétinn er fengin úr bæjarblaðinu Jökli.


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit