Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 17:19 af www.snb.is
19. júní 2012 08:00

Sr. Óskar settur í embætti

Sr. Óskar Ingi Ingason tók við embætti sóknarprests í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli þann 1. júní sl.  en hann tekur við af sr. Ragnheiði Karitas Pétursdóttur sem lét af embætti og flutti til Noregs í vor. Í sameiginlegri messu Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssafnaða á sunnudag setti sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur í Vesturlandsprófastdæmi, sr. Óskar formlega í embætti.  Sr. Óskar er þó búinn að prófa kirkjurnar svolítið því að hann fermdi í báðum sóknum um hvítasunnuhelgina.

Að lokinni messu sem fram fór í Ólafsvíkurkirkju var kirkjugestum boðið upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimilinu áður en haldið var út í góða veðrið.

 

Fréttin er fengin úr Bæjarblaðinu Jökli


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit