Á hvítasunnudag var fermt bæði í Ólafsvíkurkirkju og Ingjaldshólskirkju, það var séra Óskar Ingi Óskarsson sem fermdi, hann var gestaprestur við þessar athafnir því að hann tekur við embætti sínu sem sóknarprestir í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli þann 1. júní næstkomandi. Sr. Óskar verður settur í embætti í m essu þann 10. júní. Nóg var að gera hjá prestinum þennan dag, hann fermdi 4 börn í Ólafsvíkurkirkju um morgunin, það voru þau Alma Björk Clausen, Helgi Sigtryggsson, Nína Marín Bjargardóttir og Þórdís Lilja Þórðardóttir. Eftir hádegi var svo fermt á Ingjaldshóli en þar fermdust þau Kristófer James Eggertsson og Lilja Sæbjörg Jónsdóttir.
þa |