![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
9. júní 2012 10:00 |
Aukin endurvinnsla |
Með notkun á tveggja hólfa söfnunarbíl við sorphirðu er hægt að sækja heimilisúrgang úr báðum tunnunum í sömu ferðinni. Endurvinnsluefni úr endurvinnslutunnunni er sett í eitt hólf og óflokkaði úrgangurinn í annað og innihald bílsins flutt á sitt hvorn losunarstaðinn. |
Endurvinnsluefnin fara öll til frekari flokkunar og böggunar í umhleðslustöð og síðan til útflutnings og öruggrar endurvinnslu. Á þann hátt verða þau að hráefni í nýja framleiðslu. Óflokkaður heimilisúrgangurinn verður fluttur í Fíflholt á Mýrum og urðaður gegn ákveðnu gjaldi sem greitt er af Snæfellsbæ. Óflokkaður heimilisúrgangurinn mun minnka eftir því sem íbúar eru duglegri að flokka endurvinnsluefnin frá öðrum úrgangi og mun það í leiðinni spara urðunargjöld. Á undanförnum árum hafa íbúar Snæfellsbæjar verið duglegir við að koma alls konar grófum úrgangi og endurvinnsluefnum í Enni sem er móttökustöð og gámavöllur fyrir sveitafélagið. Árangur söfnunar þar og öll umgengni hefur verið mjög góð og stöðin til fyrirmyndar fyrir önnur sveitafélög. Íbúar eru að sjálfsögðu áfram boðnir velkomnir þangað með ýmiss konar úrgang þótt þjónusta við heimilin aukist nú með tilkomu Endurvinnslutunnu við hvert heimili.
Frétt fengin úr Bæjarblaðinu Jökli. |