Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 16:46 af www.snb.is
8. júní 2012 13:17

Trúðleikur fær frábæra gagnrýni!

 Okkur í Frystiklefanum í Rifi langar að vekja athygli á því að hafnar eru sýningar á hinu bráðskemmtilega leikriti Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason í leikstjórn Halldórs Gylfasonar. Frumsýningin var 1. júní sl. og hefur leikritið fengið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda:

 

"ein af bestu leikhúsupplifunum síðustu missera" - "óvænt rúsína í pylsuenda leikársins" - S.G. - Víðsjá - Rás 1.

  

 "Það ætlaði allt að rifna úr hlátri" - "óhætt að mæla með þessari vel gerðu fjölskyldusýningu" - E.B. - Fréttablaðið.

 

"Og meðan við hlæjum þá rifjast upp fyrir okkur að það er mikilvægara að rækta sjálfan sig en umpotta." - Þ.T. - Spássían

 

"Frábær í alla staði, 5 stjörnur af 5 mögulegum" - G.S. - Skessuhorn

 

"Það er bara rugl, ef menn eiga leið um Snæfellsnesið um það leyti sem Trúðleikur er til sýninga að sleppa því að kíkja við í Frystiklefanum. Auðvitað ættu menn að gera sér ferð vestur. Kraftmikil, bráðskemmtileg og athyglisverð sýning." - J.B.G. Fréttatíminn

 

Almennt miðaverð á sýninguna er 2500 fyrir fullorðna og 2000 fyrir börn og eldri borgara. Það verður boðið upp á sérstaka hópafslætti fyrir 10 og fleiri og þá er miðaverðið 1700 kr. fyrir börn og 2000 kr. fyrir fullorðna.

Sýningar framundan verða:
9. júní - 17:00
10. júní - 17:00
17. júní - 17:00
17. júní - 20:00
21. júní - 17:00
22. júní - 17:00
12. júlí - 17:00
13. júlí - 17:00
14. júlí - 17:00 - Lokasýning

 

Miðar eru seldir á midi.is en ef menn vilja nýta sér afsláttinn þá er hægt að panta á frystiklefinn@gmail.com eða hringja í Kára í síma 865-9432 eða undirritaða í síma 862-6362.

Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á http://www.frystiklefinn.is/a-dofinni/ og frystiklefinn er líka á facebook: http://www.facebook.com/pages/Frystiklefinn-Rifi/144894295596320

 

Hérna er smá ,,stríðir" á Youtube: http://www.youtube.com/watch?v=O2IdpKO1jYc&feature=colike

 

Bestu kveðjur,

F.h. Frystiklefans
Gunna Lára Pálmadóttir
Alt muligt,
s. 862 6362
gunnalara@gmail.com
www.frystiklefinn.is

 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit