Umsóknarfrestur í dreifnám er til 18. júní 2012. Með dreifnámi er átt við að nemandinn getur stundað fjarnám frá skólanum auk þess að standa til boða að mæta með dagskólanemendum í kennslustundir. Þeir sem skráðir eru í dreifnám hafa aðgang að kennurum á MSN allt að 4 klst. á viku. Öllum tölvupósti er svarað innan sólarhrings 5 daga vikunnar.Námsmatið byggir að stórum hluta á vinnu nemenda frá viku til viku.Upplýsingar um skólann eru á vefnum www.fsn.is .Allar frekari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa og aðstoðarskólameistara FSN í síma 4308400.Skólameistari FSN
|