![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
16. maí 2012 11:46 |
Farfuglum fjölgar jafnt og þétt |
Á myndinni má sjá fimm fuglategundir, fremst er stelkur, þá stokkandarpar, vinstra megin á hólmanum er sílamáfur, hægra megin er hettumáfur og í fjarlægð má greina tjald sem er að spóka sig í vatnsborðinu. Auk þessara fugla voru lóur á vappi í nágrenni tjarnarinnar og skömmu áður sáust þarna duggendur og álftir. Rétt er að taka fram að ekki sáust neinir plastfuglar og vonandi verður þeim ekki komið fyrir þetta árið þar sem að þeir virðast frekar fæla fugla frá.
|
Frétt fengin úr bæjarblaðinu Jökli. |