![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
31. mars 2006 10:36 |
Blakfréttir |
Í 1. deildinni sýndu Reyniskonur yfirburði en þær unnu alla sína leiki og stóðu uppi sem Héraðsmeistarar með 6 stig. Víkingur, UMFG og Snæfell skildu öll jöfn með 2 stig þar sem innbirgðisviðureignir þeirra enduðu allar með jafntefli.
Fleiri myndir má sjá undir Myndaalbúm - íþróttaviðburðir.
|
Keppnin í 2. deildinni var jöfn og spennandi. Keppt var um Héraðsmeistaratitilinn af mikilli hörku og var það síðasta hrinan sem skildi lið UMFG og Reynis að. UMFG varð héraðsmeistari í 2. deildinni en vann með dyggri aðstoð úr 1. deildinni 25-24 á móti Reyni. Varð því röðin eftirfarandi; UMFG 5 stig, Reynir 4 stig, Snæfell 2 stig og Víkingur 1 stig. Blakkonur á Snæfellsnesi hafa verið duglegar að sækja mót víðsvegar um landið og er næsta mót sem þær taka þátt í Íslandsmót öldunga í Blaki sem fram fer helgina 28.-30. apríl í Snæfellsbæ og Grundarfirði. Héraðssamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu hvetur blakáhugafólk sem og aðra félaga til að fylgjast með og hvetja konurnar okkar og karlana á því móti. Sjá nánar um Íslandsmót Öldunga í blaki sem haldið verður á Snæfellsnesi á www.snb.is/blak/snb_blak/ |