Vænn skötuselur kom í hús í Fiskiðjunni Bylgju á dögunum. Skepnan vóg 36,3 kg slægð og er þetta næststærsti skötuselur sem hefur verið flakaður þar. Flakanýting á skötusel er u.þ.b. 30% þannig að hvort flak mun hafa verið tæp 6 kg. Á myndinni hefur Halldór Brynjarsson , verkstjóri, skepnuna á loft en hann er vel ríflega meðalmaður á hæðina.
|