Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 10:56 af www.snb.is
31. júlí 2012 08:00

Sjóstangaveiðimót Sjósnæ

Opnu sjóstangaveiðimóti Sjóstangaveiðifélagi Snæfellsnes lauk á laugardag, mótið er tveggja daga mót og var haldið til veiða frá Ólafsvík kl. 6 á föstudagsmorgun og veiðarfæri dregin upp kl. 14, sami háttur var hafður á á laugardeginum nema þá voru veiðarfæri dregin upp kl. 13. Þegar í land var komið báða dagana var tekið á móti keppendum með hressingu í Mettubúð á meðan beðið var eftir vigtartölum, þar gátu keppendur einnig skipst á veiðisögum. 

Lokahóf var svo að kvöldi laugardags í Klifi en þar voru veitt verðlaun fyrir aflahæsta karlinn og konuna, flesta fiska, flestar tegundir, stærsta fiskinn og stærsta fiskinn af hverri tegund. Aflahæsti karlinn var Einar Ingi Einarsson úr Sjóak en hann fékk einnig verðlaun fyrir flesta fiska. Einar dró samtals 711 kg. úr sjó en til samanburðar má geta þess að aflahæsti karlinn á mótinu í fyrra veiddi tæplega 449 kg. Aflahæsta konan í ár var Svala Júlía Ólafsdóttir úr Sjósigl en hún landaði 460kg.

Keppendur á mótinu í ár voru 33 og réru þeir á 10 bátum, aflahæsti báturinn var Sólrún SH 360 en keppendur á þeim bát veiddu samtals 1.646 kg. báða dagana og var meðalafli á stöng tæplega 549 kg en það er um 160kg. meira en meðalafli stanga á þeim bát sem næst þeim kom. Áberandi var hve afli var minni seinni dag mótsins en það má gera ráð fyrir að því valdi verra veður þann daginn, oft hefur verið betra veður þegar Sjósnæ heldur mót en keppendur létu það ekki á sig fá.

Stærstu þorskana og jafnframt stærstu fiskana á mótinu veiddu Jón B. Andrésson úr Sjósnæ og Guðrún Jóhannesdóttir úr Sjóak, þorskurinn sem Jón veiddi var 20,57 kg. og Guðrún veiddi 18,12 kg. þorsk. Á meðfylgjandi myndum má sjá þau Jón og Guðrúnu með fiskana.

 

 

Fréttin er fengin úr bæjarblaðinu Jökli


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit