Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 21:59 af www.snb.is
20. júlí 2012 13:27

Færðu fornleifafræðingnum Jöklu hina nýju

Ritsafnið „Jökla hin nýja“ eftir Ólaf Elímundarson sagnfræðing frá Dvergasteini á Hellissandi þykir kostagripur og mjög gott heimildasafn um byggð og mannlíf undir Jökli. Margir hafa fjallað um þá sögu og bætt hvern annan upp. Nú í sumar er enn unnið að heimildaöflun á svæðinu. Á Gufuskálum stendur yfir fornleifauppgröftur, svo sem fjallað hefur verið um í Skessuhorni, undir forystu Lilju Bjarkar Páldóttur fornleifafræðings frá Fornleifastofnun Íslands.

Þeir sem sáu um útgáfu lokabindis ofannefnds ritverks Ólafs Elímundarsonar fannst rétt að sýna Lilju þakklæti fyrir frumkvæði og dugnað hennar við verkefnið á Gufuskálum með því að færa henni að gjöf ritverkið Jöklu hina nýju. Einn úr útgáfuhópnum, Skúli Alexandersson, heimsótti Lilju þar sem hún var á vettvangi við forleifauppgröftinn og afhenti henni bækurnar. Þar mátti sjá merkilegar verbúðaminjar vera að koma í ljós og umhverfð allt kalla áframhaldandi verkefni fyrir Lilju og hennar samstarfsfólk.

 

Frétt feingin af vef Skessuhorns


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit