Skólaárið 2010 - 2011 var farið af stað með söfnunarátak til að kaupa snjalltöflur í skólann og strax safnaðist fyrir tveimur töflum, fljótlega bættust fleiri við og með töflunni sem var afhent í síðustu viku eru þær nú orðnar fimm talsins, auk þess sem ein kennslustofa er búin fjarfundabúnaði sem bíður upp á svipaða möguleika. Stefna Grunnskóla Snæfellsbæjar er að bæta stöðugt við töflufjöldann, en kostnaður við hverja snjalltöflu er um 500 þúsund svo að samfélagið er að styrkja skólann mjög rausnarlega.
Í samtali við kennara sem eru að nota töflurnar kom fram að þær bjóða upp á mikla möguleika í framsetningu á námsefni og þannig er hægt að auka áhuga nemenda á því sem verið er að kenna.
Skólastjóri tók við gjöfinni úr höndum Ránarkvenna og þakkaði þeim þann góða hug sem þær sýndu þannig skólanum, það væri mikil gæfa skólans hversu hlýtt félagasamtök og fyrirtæki í bænum hugsuðu til skólans og nemenda hans.
|