![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
8. júní 2012 13:17 |
Trúðleikur fær frábæra gagnrýni! |
"ein af bestu leikhúsupplifunum síðustu missera" - "óvænt rúsína í pylsuenda leikársins" - S.G. - Víðsjá - Rás 1.
|
"Það ætlaði allt að rifna úr hlátri" - "óhætt að mæla með þessari vel gerðu fjölskyldusýningu" - E.B. - Fréttablaðið.
"Og meðan við hlæjum þá rifjast upp fyrir okkur að það er mikilvægara að rækta sjálfan sig en umpotta." - Þ.T. - Spássían
"Frábær í alla staði, 5 stjörnur af 5 mögulegum" - G.S. - Skessuhorn
"Það er bara rugl, ef menn eiga leið um Snæfellsnesið um það leyti sem Trúðleikur er til sýninga að sleppa því að kíkja við í Frystiklefanum. Auðvitað ættu menn að gera sér ferð vestur. Kraftmikil, bráðskemmtileg og athyglisverð sýning." - J.B.G. Fréttatíminn
Almennt miðaverð á sýninguna er 2500 fyrir fullorðna og 2000 fyrir börn og eldri borgara. Það verður boðið upp á sérstaka hópafslætti fyrir 10 og fleiri og þá er miðaverðið 1700 kr. fyrir börn og 2000 kr. fyrir fullorðna. Sýningar framundan verða:
Miðar eru seldir á midi.is en ef menn vilja nýta sér afsláttinn þá er hægt að panta á frystiklefinn@gmail.com eða hringja í Kára í síma 865-9432 eða undirritaða í síma 862-6362. Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á http://www.frystiklefinn.is/a-dofinni/ og frystiklefinn er líka á facebook: http://www.facebook.com/pages/Frystiklefinn-Rifi/144894295596320
Hérna er smá ,,stríðir" á Youtube: http://www.youtube.com/watch?v=O2IdpKO1jYc&feature=colike
Bestu kveðjur, F.h. Frystiklefans
|