Stjórnaðu leturstærð vefsins hér til hægriMinnsta leturMiðstærð letursStærsta letur
RSS
Senda fyrirspurnPrenta út þessa síðu
LeitaSýna allt veftréð

Stjórnkerfið
Þjónusta
Tæknideild
Um Snæfellsbæ
Myndaalbúm
Tenglar
Lausar lóðir
Skipulag

  BÆJARDYRNAR

     
__________________
            2013
 
_____________
     

 

3. bekkur GSNB setur niður kartöflur

 


Ferðast þú í sumar?

Já, innanlands

Já, erlendis

Bæði innanlands og erlendis

Nei, verð bara heima

Núna eru

að skoða vef
Snæfellsbæjar

 

 

  

 

 

 

 

   

 

 Svæðisgarður

 

Frystiklefinn

 

 

Almennt

Smelltu hér til að gerast áskrifandi að flokknum Almennt


Sláðu inn notandanafn og lykilorð til að skrá þig inn í spjallkerfið.
Netfang:Lykilorð:
Smelltu HÉR til að nýskrá þig
Glatað lykilorð ? Smelltu HÉR til þess að fá lykilorðið þitt sent.

Góður bær- gott mannlíf.

19. janúar 2009 18:05


Komið þið blessuð og sæl og gleðilegt nýtt ár! Og takk fyrir gömlu árin.
Mér fannst rétt að koma inn með smá hugleiðingu um okkur og bæinn okkar núna, þegar kreppuumræðan er alveg að kaffæra okkur.

Hér í Snæfellsbæ er næg atvinna og allt til alls.
Nægt húsnæði,góð aðstaða til íþróttaiðkunnar, flott íþróttahús og svo Sólarsport, þar sem er metnaður eigenda er að dekra við viðskiptavini.

Góðir skólar,Ágætar verslanir og stapíl fyrirtæki.
Gott félagsstarf, við allra hæfi,(bara að bera sig eftir því).
Fullt að gerast. Gaman að nefna mjög vel heppnaða sýningu nú nýlega, hjá Leikfélagi Ólafsvíkur,hafi aðstandendur sýningarinnar einlægar þakkir fyrir.

Hið árlega Kúttmagakvöld var um síðustu helgi,sem unnið er af 3 félagasamtökum hér í bæ, af stakri eljusemi, sem er einstök og þakkarverð.

Karoky keppnin skemmtilega.
Og unga fólkið sem keppti í söngvakeppni félagsmiðstöðva á dögunum á Akranesi, og gerði sér lítið fyrir og vann, alveg frábært.

Svo er verið að undirbúa þorrablótið, sem verður örugglega skemmtilegt eins og alltaf,við skulum muna að nefndin vinnur í sjálfboðavinnu og það er auðvitað sjálfsagt að við sýnum þakklæti okkar með því að mæta!
Vona að unga fólkið fjölmenni.

Þetta er bara brot að því góða sem er í gangi.

Svo fer sólin að koma upp, og þá fara Kvenfélagskonurnar í Ólafsvík að baka sólarpönnukökurnar!

Alltaf eitthvað gott og skemmtilegt að gerast, svo að við skulum bara vera hress og kát og bjartsýn.

Snæfellsbær hefur ótal möguleika,sem gaman ætti að vera að glíma við.

Megi okkur öllum ganga allt í hagin.
Kær kveðja
Ester
Fyrra nýtt  Fyrra  Upp  Niður  Næsta  Næsta nýtt 
Þræðir
Titill Höfundur Skráð
Góður bær- gott mannlíf. (Nýtt) Ester Gunnarsdóttir 19.1.2009