Smelltu hér til að gerast áskrifandi að flokknum Almennt
| Sláðu inn notandanafn og lykilorð til að skrá þig inn í spjallkerfið. |
Ungmennafélagið Víkingur |
29. mars 2008 23:05 |
| Í síðasta blaði Jökuls kom fram að komin sé ný stjórn fyrir Umf.Víking það voru miklar gleðifréttir.
Nokkru áður hafði komið frétt í blaðinu um að allar líkur væru á að leggja þyrfti félagið niður á áttugasta afmælisárinu vegna þess að ekki fengist fólk í stjórn. Ég verð að viðurkenna að ég hrökk illilega við. Hvað er að okkur? Við vitum að íþróttastarf er einhver besta forvörn,fyrir börn og unglinga,félagsstarfið eflir félagsþroska þeirra og samkend þar fá þau útrás fyrir orku sína og hreyfiþörf og læra að lúta aga. Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með samstarfi foreldra og barna í sambandi við ferðalög, vinnu á mótum, dósasöfnun og fl. það samstarf og samvera hlýtur að gefa öllum mikið.Eru foreldrar og við öll ekki tilbúin til að leggja fram krafta okkar svo þetta góða starf Umf Víkinga geti haldið áfram ? Eg vil óska nýrri stjórn velfarnaðar í starfi og vona að ykkur gangi allt í haginn. Fráfarandi stjórn fær bestu þakkir fyrir frábært starf. ÁFRAM VÍKINGUR. Jenný Guðmundsdóttir |
|
|
|
|
|
|
| Þræðir | |||||
| Titill | Höfundur | Skráð |
| Jenný Guðmundsdóttir, | 29.3.2008 |