Fundur í öldrunarnefnd – þjónustuhópi aldraðra Fundarstaður: Heilsugæslustöðin Ólafsvík Fundardagur: 20.11.02, kl. 17.00 Mættir: Margrét Vigfúsdóttir, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir, Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Gunda Bech Nygaard og Guðrún Tryggvadóttir. Formaður setti fund og gerði grein fyrir því að laus pláss væru á Jaðri og enginn á biðlista. Voru þeir fundarmenn sem starfa með öldruðum hvattir til að kynna umsóknir um vistunarmat fyrir skjólstæðingum sínum sem virtust þurfa fljótlega á þeim að halda. Sveinbjörg las yfir og lagði fram tillögu að stefnu eða erindisbréfi Öldrunarnefndar Snæfellsbæjar í því skyni að fundarmenn tækju hana heim með sér til skoðunar og seinni umræðu. Voru ýmis atriði hennar rædd, einkum hvernig hægt væri að ná fram markmiðum um betri þjónustu. Í þeim tilgangi hefur nefndin lengi haft áhuga á verkefninu “Heilsueflandi heimsóknum til aldraðra” í samvinnu við Heilsugæslustöðina, Félagsþjónustuna og bæjaryfirvöld. Er ljóst að leita þarf fjárstuðnings til bæjarstjórnar og tóku Berit, Sveina og Gunda að sér að gera kostnaðaráætlun og skrifa bæjarstjórn bréf með umsókn um fjárstuðning við verkefnið sem fyrst. Gunda vakti máls á að hægt væri að bæta skipulag á læknisþjónustu við vistmenn Dvalarheimilisins Jaðars og einnig að mörkin milli aðila sem kæmu að öldrunarþjónustu í Snæfellsbæ mættu vera sveigjanlegri. Nefndin ræddi hvernig hún gæti komið að málinu. Berit stakk upp á því að nefndin sendi stjórn Jaðars bréf þar sem hvatt yrði til fundar milli stjórnar, forstöðumanns og lækna um hvernig bæta megi skipulag læknisþjónustunnar. Mun hún leggja uppkast að slíku bréfi fyrir næsta fund. Sveinbjörg lagði til að einn liður í að kynna sér aðbúnað aldraðra í Snæfellsbæ yrði að spyrjast fyrir um þau markmið sem stjórn Jaðars setti sér með rekstri þess og hvort starfsmenn hefðu einhver markmið sem þeir hefðu að leiðarljósi við umönnun vistmanna. Var ákvörðun um hvenær það yrði gert frestað um sinn. Guðrún fræddi nefndina um að þátttaka eldri borgara í sundleikfimi, sem hún hefur með höndum, hefði minnkað nokkuð og hefði hún gert tilraunir til að vekja áhuga íbúa Jaðars á þátttöku með litlum árangri. Gunda taldi að það myndi hjálpa mikið ef sjúkraþjálfari gæti hjálpað til svo hreyfihamlað fólk ætti auðveldara með að taka þátt. Engu að síður væri ljóst að nokkrir vistmenn gætu notið góðs af þeirri hreyfingu sem sundleikfimin býður upp á. Guðrúnu var bent á að ræða málið við forstöðumann Jaðars. Næsti fundur ákveðinn 04.12.02, kl.17.00. Fundi slitið kl. 18.00. Fundargerð ritaði Sveinbjörg Eyvindsdóttir. |