27. mars 2003 13:40 |
Grunnskólarnir sameinaðir? |
frétt úr Jökli 27. mars 2003 |
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar var kynnt skýrsla skólanefndar Snæfellsbæjar um grunnskólana þrjá í Snæfellsbæ.
|
Niðurstöðurnar byggir skólanefndin á faglegri skoðun og upplýsingaöflun og ekki síst endurspegla tillögurnar umræður innan grunnskólanna þriggja í Snæfellsbæ. Þær ættu því ekki að koma starfsfólki skólanna á óvart á nokkurn hátt.Lagt er til að grunnskólarnir þrír verði sameinaðir undir einni stjórn, þ.e.a.s. einum skólastjóra en þremur aðstoðarskólastjórum, einum í hverjum skóla. Einnig er lagt til að aldursskipta grunnskólunum á Hellissandi og í Ólafsvík, þ.e.a.s. 1. - 4. bekkur á Hellissandi og 5. - 10. bekkur í Ólafsvík. Þetta skapaðist mest af stærð skólahúsnæðisins, en einnig til að skapa heildstæða hópa í skólana og slíta ekki í sundur miðdeildina í 5. - 7. bekk.Lagt er til að aðstoðarskólastjóri á Lýsuhóli verði ráðinn til þriggja ára og haustið 2007 yrði staða skólans endurmetin og athugun fari fram á því hvort ráðleggt sé að halda starfsemi skólans áfram í óbreyttri mynd. Frábær árangur hefur náðst í skólastarfi Lýsuhólsskóla og því varla forsendur til að hætta því starfi. Fram að árinu 2007 verður einnig nægilegur nemendafjöldi á Lýsuhóli til að réttlæta óbreytt skólastarf. Mikil áhersla er lögð á það að Lýsuhólsskóli verði ekki lagður niður eftir þennan tíma heldur verði honum fengið nýtt hlutverk.Rökin fyrir einum skólastjóra eru sú að þar náist aukin hagræðing í skólastefnu Snæfellsbæjar og ákveðin tenging á milli skólanna þriggja. Með aldursskiptingu nemendanna telur skólanefnd að fagleg sérhæfing og allir möguleikar nemenda og kennara myndu aukast þar sem hver aldurshópur yrði stærri.Telur skólanefnd mjög mikilvægt að bæjarfélagið verði sameinað enn frekar og yrði þetta einn liður í því, þ.e. með meiri samgangi á milli barnanna. |