Stjórnaðu leturstærð vefsins hér til hægriMinnsta leturMiðstærð letursStærsta letur
RSS
Senda fyrirspurnPrenta út þessa síðu
LeitaSýna allt veftréð

Stjórnkerfið
Þjónusta
Tæknideild
Um Snæfellsbæ
Myndaalbúm
Tenglar
Lausar lóðir
Skipulag

  BÆJARDYRNAR

     
__________________
            2013
 
_____________
     

 

Árshátíð miðstigs GSNB - 5. bekkur

 


Ertu ánægð/ur með úrslit kosninganna?

Nei

Bæði og

Núna eru

að skoða vef
Snæfellsbæjar

 

 

  

 

 

 

 

   

 

 Svæðisgarður

 

Frystiklefinn

 

 

6. mars 2003 10:40

Á döfinni í Grunnskólanum á Hellissandi

úr Jökli 6. mars 2003

Fimmtudaginn 6. mars lýkur opnum dögum hjá okkur. Dagarnir bera að þessu sinni yfirskriftina ,,Milli himins og jarðar".

 

Nemendur bjóða foreldrum og öðrum áhugasömum gestum að koma milli kl. 17:00 - 18:00 og skoða afrakstur vinnunnar. Aðgangseyrir fyrir gesti er 500 kr, kaffi og meðlæti innifalið. Allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda.
 
Þriðjudaginn 11. mars kl. 20:30 kynna starfsmenn skólans Olweusarkerfið gegn einelti fyrir foreldrum. Eins og fram kom í síðasta tölublaði fréttablaðs skólans, Tengli, þá gengur Olweusarkerfið út á það að skapa samfélag þar sem einelti þrífst ekki. Til þess að svo geti orðið verðum við öll, foreldrar og starfsmenn skólans, að vinna saman og bregðast eins við þegar við verðum vör við þessa óæskilegu hegðun. Það er mjög mikilvægt að allir foreldrar mæti bæði feður og mæður. Farið verður yfir:
* skilgreininguna á einelti sem gengið er út frá
* helstu niðurstöður eineltiskönnunarinnar sem gerð var í byrjun desember
* eineltishringinn
* og ýmislegt fleira sem viðkemur þessu viðfangsefni
Með aukinni fræðslu og einarðari afstöðu gegn einelti aukast líkurnar á að við getum losað bæði vinnustað barnanna okkar og okkar eigin vinnustaði við einelti sem er ofbeldi sem aldrei á að líða. Heitt verður á könnunni og kaffihlaðborð í boði starfsmanna.

 

Nemendur og starfsmenn


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit