Stjórnaðu leturstærð vefsins hér til hægriMinnsta leturMiðstærð letursStærsta letur
RSS
Senda fyrirspurnPrenta út þessa síðu
LeitaSýna allt veftréð

Stjórnkerfið
Þjónusta
Tæknideild
Um Snæfellsbæ
Myndaalbúm
Tenglar
Lausar lóðir
Skipulag

  BÆJARDYRNAR

     
__________________
            2013
 
_____________
     

 

Árshátíð miðstigs GSNB - 5. bekkur

 


Ertu ánægð/ur með úrslit kosninganna?

Nei

Bæði og

Núna eru

að skoða vef
Snæfellsbæjar

 

 

  

 

 

 

 

   

 

 Svæðisgarður

 

Frystiklefinn

 

 

13. júní 2007 09:20

Gallerí Djúpalónssandur??

Gunnar Ólafur Sigmarsson áhugaljósmyndari frá Hellissandi opnaði á dögunum sýningu á náttúruljósmyndum af Snæfellsnesi á Djúpalónssandi.  Myndirnar eru 10 talsins og eru prentaðar á álplötur og sprautulakkaðar með bílalakki í von um að þær endist betur í hinu hressilega snæfellska veðurfari.  Þessi aðferð reyndist einnig gefa myndunum mjög fallega áferð. Þær eru festar í klettaveggina og aðspurður sagðist Óli hafa rætt við staðarálfana og fengið hjá þeim leyfi til að skreyta híbýli þeirra og vilyrði um að gæta myndanna. Að sjálfsögðu gerði hann einnig ámóta samkomulag við þjóðgarðsvörð og landverði Þjóðgarðsins.
Myndir Óla eru sérlega fallegar og njóta sín vel í hinu magnaða umhverfi á Djúpalónssandi. Sýningin er haldin í samvinnu við þjóðgarðinn Snæfellsjökul og er styrkt af Sparisjóði Ólafsvíkur.  Fyrirhugað er er að sýningin standi fram eftir sumri.
 
Myndina af Djúpalónssandi tók ÓLI

 

Frétt úr Jökli 7. júní 2007


Til baka

Senda á Facebook


aftur í yfirlit