31. júlí 2012 09:52 |
Uppgröftur á Gufuskálum |
|
Að sögn Lilju Bjarkar Pálsdóttur sem er ábyrgðaraðili verkefnisins eru þau með fjármagn til fjögurra vikna á þessu ári og tveimur þeirra lokið nú þegar þetta er skrifað. Vonast hún til að sá tími dugi til að klára tóftina sem unnið er með núna en haldið verður áfram á næsta ári. Verkefnið hófst árið 2008 og er í raun björgunaraðgerðir en markmiðið er að rannsaka manngerða hóla sem liggja undir skemmdum frá sjó og vindi er vonast til að verkefnið leiði í ljós hve mikið er eftir af mannvistarleifunum, hvernig þær tengjast. Margir merkilegir hlutir hafa fundið ýmiskonar handverk, heimagerðir tálgaðir taflmenn úr ýsubeini, það áhugaverðasta í sumar er teningur úr rostungstönn en fundur hans bendir til að hlutir hafi verið fullunir á staðnum. Verkefni sem þetta er verkefni til margra ára og sér Lilja Björg fyrir sér að þegar búið er að gera verstöðina gæti framhaldið verið að skoða umhverfið í kring og svæðið á milli húsana og til hvers það var nýtt. Sagði Lilja Björg að lokum að mjög vel hefði verið tekið á móti þeim og allir áhugasamir um það sem verið var að gera. þa
Fréttin er fengin úr bæjarblaðinu Jökli. |