30. júlí 2012 11:41 | ||
Góð þátttaka í Sandarahlaupi | ||
|
Góð mæting var í Sandarahlaupi sem haldið var laugardaginn 14. júlí á Sandara- og Rifsaragleði. Að hlaupi loknu þáðu hlauparar sem og gestir grillaðar pylsur í boði fyrirtækja í Snæfellsbæ. Gunnar Örn Arnarson sá um taktfasta tónlist á meðan Ari Bent Ómarsson sá um upphitun. Á næstu Sandara- og Rifsaragleði er stefnt að því að færa út kvíarnar og bjóða upp á lengri hlaupaleið.
| ||
U.M.F. Reynir vill þakka eftirtöldum fyrir stuðninginn: Brauðgerð Ólafsvíkur – Esjari ehf. - Fiskmarkaði Íslands hf. - Guðbjarti ehf. - K.G. Fiskverkun ehf. - Landsbankanum - Nesveri ehf. - Nónvörðu ehf. - Sandbrún ehf. - Sjávariðjunni hf. og Snæfellsbæ.
Fréttin var fengin úr bæjarblaðinu Jökli.
| ||