20. júlí 2012 08:24 |
Selja ferskt sjávarfang í Ólafsvík |
Sigurður Ingi Guðmarsson afgreiðir í Sjávarkistunni. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við hann um gang verkefnisins. „Við reynum að selja eins ferskan fisk og við getum og allur fiskur sem við fáum er veiddur í Breiðafirði. |
Hráefnið erum við að fá frá fiskvinnslum á svæðinu eins og Bylgjunni, Valafelli, Reykkofa Gunnu og Sjávariðjunni. Við fáum líka tilbúna fiskrétti frá Valafelli, þetta er eins einfalt og það getur orðið. Það þarf bara að taka lokið af og setja í ofninn,“ segir Sigurður. „Við reynum að nýta allt hráefni sem við fáum og gerum maríneringu sjálfir sem við leggjum fiskinn í.“ Sjávarkistan er ekki veitingastaður, en fyrir utan er grill sem fólk getur notað ef það vill grilla fiskinn sem það kaupir. „Við erum með grill hérna fyrir utan þar sem fólki stendur til boða að grilla. Ferðamenn hafa nýtt sér það töluvert. Að kaupa sér fisk hjá okkur og setjast svo bara hérna fyrir utan og þar sem þau grilla og borða fiskinn í góða veðrinu. Útlendingarnir vilja yfirleitt fá ferskan fisk. Það kom hópur af erlendum ferðamönnum hérna um daginn sem fussuðu bara yfir maríneringunni. Þau vildu ekki heldur að við krydduðum fiskinn fyrir þau, því þau vildu finna fiskbragðið. Aftur á móti vilja Íslendingarnir helst fá fisk í maríneringu. Við bjóðum líka upp á að krydda fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Sigurður. Sjávarkistan er með síðu á Facebook þar sem hægt er að sjá símanúmer staðarins og ýmsar upplýsingar. „Það er hægt að hringja til okkar og panta. Til dæmis er hægt að panta fisk á grillpinnum. Þá bara höfum við það klárt á þeim tíma sem óskað er eftir. Hér eru engin vandamál. Bara verkefni sem við leysum,“ segir Sigurður að lokum.
Fréttin er fengin af vef Skessuhorns. |