2. júlí 2012 08:18 |
Konur hlupu í Kvennahlaupi |
|
Flestar konurnar fóru 2.5 km., og svo voru nokkrar sem að fóru 5 km. Í lokin fengu allir Kristal að drekka og verðlaunapening. Magdalena Kristjánsdóttir var heiðruð því að hún var elsta konan í hlaupinu 84 ára. Þar að auki voru fjórir happadrættisvinningar dregnir út. Sigríður Þórarinsdóttir sá um að konur hituðu vel upp fyrir hlaupið.
Fréttin fengin úr bæjarblaðinu Jökli. |