Opinn fundur Hafrannsóknarstofnunar um veiðiráðgjöf komandi fiskveiðiárs og starfsemi hennar fór fram á Klifi þann 18. júní. Jónar P. Jónasson kynnti rannsóknir á krabbategundum, trjónu, bog og grjótkrabba, en þeir tveir fyrrnefndu hafa verið algengustu krabbar við íslandsstrendur, sá síðastnefndi fannst fyrst árið 2006 og hófust rannsóknir árið 2007, rannsóknir hafa leitt í ljós að honum fjölgar hratt og er orðin stærsta krabbategundinn hér við land, finnst aðallega við vesturströnd landsins, frá Reykjanesi og norður í Arnarfjörð á Vestfjörðum, einnig er útbreiðsla hans við austur strönd Bandaríkjanna.
Kynntar voru einnig rannsóknir á beitukóng og hörpudisk og verða t.d. Engar veiðar leyfðar á hörpudisk á næsta fiskveiði ári og er það 10 árið í röð. Jóhann Sigurjónsson kynnti veiðiráðgjöfina á nytjastofnum við Íslandsstrendur og kom fram að þorsk stofnin hefur styrkst mikið og leggur stofnunin til auknigu á þorsk kvóta úr 177 þúsund tonnum í 196 þúsund tonn, lagt er til að ýsukvótinn verði skertur um 5 þúsund tonn, einnig mælir stofnunin með því að kvóti á ufsa, grálúðu, gullkarfa og síld verði aukin. sig